Spurt og svarað um loftslagssjóð ungs fólks

Loftslagsmál

Boðið verður upp á spurt og svarað um sjóðinn á staðnum og í fjar. Mynd/Arctic Images - Ragnar Th
Hús séð úr lofti. Fjall og sjór í fjarska.

Ætlar þú að sækja um í loftslagssjóð ungs fólks í Reykjavík? Ertu með pælingar eða spurningar um ferlið? Vantar þig aðstoð við að senda inn umsókn? Við bjóðum upp á spurt og svarað um sjóðinn á staðnum og í fjar.

Starfsfólk Reykjavíkurborgar verður með opið spjall í Ráðhúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 5. mars þar sem þú eða teymið þitt geta komið, fengið góð ráð við að senda inn umsókn og spurt út í ferlið. Við verðum frá klukkan 15:30-17:30 á aðgengilegum stað í opna rýminu rétt fyrir innan aðalinnganginn.

Þau sem komast ekki á staðinn geta spjallað við starfsfólk daginn eftir, fimmtudaginn 6.mars, klukkan 15:30-17:30, í gegnum fjarfundahlekk.

Loftslagssjóður ungs fólks í Reykjavík er fyrir aldurinn 15-24 ára.