Spennandi áform nýrra rekstraraðila í Kolaportinu
Samið hefur verið um rekstur almenningsmarkaðar í Tryggvagötu 19, Kolaportinu, til næstu fimm ára. Auglýst var eftir varanlegum rekstraraðilum og bárust sex tilboð, en tilboð Götubita ehf. þótti best og verður því samið við Róbert Aron Magnússon og Einar Örn fyrir hönd óstofnaðs félags um reksturinn. Lögð verður áhersla á fjölbreyttan og lifandi markað sem skapi miðstöð mannlífs í miðborginni.
Auglýst var eftir varanlegum rekstraraðila að almenningsmarkaði í Tryggvagötu 19 að því gefnu að samningar næðust við ríkið um áframhaldandi húsaleigusamning á húsnæðinu, sem nú liggur fyrir. Almenningsmarkaðurinn Kolaportið hefur verið rekinn á fyrstu hæð í Tryggvagötu 19 undanfarin ár og í auglýsingu um varanlegan rekstraraðila var horft til niðurstöðuskýrslu starfshóps um almenningsmarkað í Reykjavík. Matsnefnd fór yfir tilboð sem bárust og var leiguverð metið til 25% stiga og aðrir matsþættir til 75% stiga. Aðrir matsþættir voru til að mynda farsæl reynsla af sambærilegum verkefnum, fjölbreytt vöruúrval á breiðu verðbili, svæði undir flóamarkað og viðburðasvæði. Þá var horft til þess að áætluð starfsemi í húsnæðinu yrði góð viðbót við framboð á verslun og þjónustu sem fyrir er í miðbæ Reykjavíkur. Götubiti ehf. skilaði hæsta leigutilboði auk þess sem matsnefnd mat tillögu þeirra, það er Róberts Arons og Einars Arnar, til flestra stiga. Borgarráð samþykkti drög að leigusamningi í dag og verður samningurinn tímabundinn til fimm ára með þriggja mánaða uppsagnarfresti á báða bóga. Mánaðarleiga verður 4.250.000 krónur.
Róbert Aron Magnússon hefur verið leiðandi í matar- og pop up viðburðum á Íslandi undir formerkjum Götubita ehf og hefur sett upp veitingastaði í London og á Íslandi. Þá hefur hann sett upp fjölda tónleika og starfaði hjá Iceland Airwaves á árunum 2003 til 2012.
Einar Örn stofnaði Serrano skyndibitastaðina á Íslandi árið 2002 og hefur stofnað og rekið fjölda veitingastaða og mathalla erlendis, svo sem mexíkósku veitingastaðina Zócalo og STHLM mathöllina í Stokkhólmi.
Höfðað bæði til íbúa og ferðamanna
Lagt er upp með að Kolaportið verði þróað sem fjölbreyttur og lifandi markaður þar sem listir, matur og markaðsmenning fléttist saman og skapi miðstöð mannlífs í miðborginni. Ætlunin er að höfða jafnt til íbúa sem ferðamanna og skapa markað þar sem fólk komi ekki aðeins til að versla heldur til að skoða, hitta aðra, kynnast nýjum menningarheimum og upplifa eitthvað nýtt og spennandi í hverri heimsókn. Þeir Róbert Aron og Einar Örn hyggjast byggja á arfleifð Kolaportsins sem markaðar, en þróa áfram til dæmis með sveigjanlegri opnunartíma og fjölbreyttri dagskrá. Þá ætla þeir að leggja áherslu á að Kolaportið verði vettvangur fyrir götulist.
Lagt verður upp með tvo til þrjá veitingastaði, kaffihús og bar, leiksvæði fyrir börn innandyra, matvöruverslun, matvörumarkað og endurbætt rými fyrir leigutaka svo eitthvað sé nefnt. Þá hafa aðilar á bakvið til að mynda Extraloppuna, Matarmarkað Íslands, Húrra Reykjavík og Iceland Airwaves sýnt áhuga á starfsemi í húsinu.