Skráning í leikskóla í haustfríi er hafin

Börn að leik í sandkassa.

Þau sem ætla að nýta sér þjónustu leikskóla borgarinnar þá daga sem grunnskólarnir eru í haustfríi, 24., 27. og 28. október næstkomandi, þurfa að skrá börn sín sérstaklega. Opnað var fyrir skráningu 24. september og er skráningarfrestur til 3. október. 

Skráning fer fram á minarsidur.reykjavik.is.

Gott að hafa í huga:

  • Á skráningardögum er vistun valkvæð og leikskólagjöld því felld niður ef við á.
  • Ef óskað er eftir vistun fyrir barn á þessum dögum þarf að skrá það sérstaklega hér og þá er greitt fyrir þá daga.
  • Ef barn er ekki skráð í vistun er reiknað með því að það verði í fríi.
  • Hægt er að skrá barn í vistun alla dagana eða einhvern þeirra.
  • Greitt er fyrir þá daga sem barnið er skráð, sama hvort barnið mætir eða ekki.
  • Skráning er bindandi og gildir einungis fyrir þá daga sem barnið er skráð.