Samþykkt að fara í stjórnsýsluúttekt á skipulagsferli við Álfabakka
Borgarhönnun Framkvæmdir
Innri endurskoðun borgarinnar verður falið að gera ítarlega stjórnsýsluúttekt á skipulagsferlinu er varðar Álfabakka 2a, Suður- Mjódd. Þetta var samþykkt á fundi borgarstjórnar í dag. Jafnframt verður hafin vinna við að endurskoða feril skipulagsmála innan borgarinnar til að tryggja frekari gæði við skipulagsgerð.
Á dagskrá borgarstjórnar í dag voru tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um stjórnsýsluúttekt á Álfabakkamálinu og tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um stjórnsýsluúttekt á skipulagsferli Álfabakka 2a. Tillögurnar voru ræddar saman og að lokum samþykkt tillaga Sjálfstæðisflokks með viðbótum meirihluta Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar. Samþykkta tillagan er eftirfarandi:
„Lagt er til að innri endurskoðun borgarinnar verði falið að gera ítarlega stjórnsýsluúttekt á skipulagsferlinu er varðar Álfabakka 2a, Suður-Mjódd. Í úttektinni verði meðal annars tekið tillit til:
1. Ákvarðanatökuferlisins í málinu.
2. Tímalínu málsins, frá upphafi til loka.
3. Regluverksins og framkvæmd þess, með áherslu á hvort farið hafi verið eftir gildandi lögum og reglum.
4. Eftirlitsferla, með sérstakri áherslu á hvernig staðið var að eftirliti við byggingu skemmunnar.
5. Athugasemda íbúa og hvernig unnið var úr þeim athugasemdum.
Jafnframt er lagt til að innri endurskoðun fylgi úttektinni eftir með virku eftirliti, sem byggir á niðurstöðum hennar, til að stuðla að nauðsynlegum umbótum og auknu trausti á skipulagsferlum borgarinnar. Mikilvægt er að öllum steinum verði velt við til að greina veikleika í stjórnsýslunni og tryggja að slík mistök endurtaki sig ekki í framtíðinni.
Sömuleiðis er lagt til að hafin verði vinna við að endurskoða feril skipulagsmála innan borgarinnar til að tryggja frekari gæði við skipulagsgerð og ekki síst skilvirka innleiðingu borgarhönnunarstefnu sem liggur fyrir í drögum og verður samþykkt með vorinu. Stefnan verður lögð til grundvallar við alla deiliskipulagsvinnu. Nú þegar eru meðal annars unnin skuggavörp og samgöngumat við skipulagsgerð en tilefni er til að gera frekari kröfur hvað varðar gæði og útfærslu mannvirkja sem og lóðarhönnunar. Efla þarf áherslu á samspil mannvirkja við umhverfi sitt við breytingar á skipulagi ekki síður en við nýja skipulagsgerð. Fengin verði utanaðkomandi aðstoð sérfræðinga utan borgarinnar í arkitektúr og borgarhönnun. Meðal verkefna verði að tryggja í ferlinu að fyrir hendi sé öryggisventill svo hægt sé að grípa inn í ef verkefni stefna fyrirsjáanlega í neikvæða átt eftir samþykkt skipulags. Sömuleiðis verði skoðuð aðferðafræði sem gengur út á að hönnun stærri verkefna sé komin lengra í ferlinu við deiliskipulagsgerð svo ekki sé verið að samþykkja skipulagsheimildir sem ófyrirsjáanlegt er hvernig spilast úr. Skoðuð verði fordæmi og fyrirmyndir erlendis frá í þessu samhengi. Jafnframt er lagt til að auka strax gagnsæi skipulagsgagna með því að fara fram á það við deiliskipulagsvinnu umfram minniháttar breytingar að umfang og drög að ásýnd mannvirkis og samhengi þess við umhverfi sitt verði sett inn í þrívíddarmódel svo auðveldara sé að meta og skilja betur áhrif þess á nærumhverfið.“
Mikilvægt að læra af mistökunum
Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir mikilvægt að læra af þeim mistökum sem gerð hafa verið. „Það er líka brýnt að horfa til framtíðar og koma í veg fyrir að svona geti gerst aftur,“ segir hann. „Þess vegna viljum við skoða málið ofan í kjölinn, greina hvar má gera betur í stjórnsýslunni og endurskoða feril skipulagsmála hjá borginni til að tryggja frekari gæði."