Reglur um bílastæðakort íbúa í Reykjavík

Íbúakort

Borgarbúum og öðrum hagaðilum gefst nú tækifæri á að koma á framfæri ábendingum varðandi drög að reglum um bílastæðakort íbúa í Reykjavík eða um íbúakort. 

Núgildandi reglur um bílastæðakort íbúa í Reykjavík voru samþykktar á fundi skipulags- og samgönguráðs og á fundi borgarráðs 2021. 

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 25. júní var samþykkt var að gefa almenningi kost á að koma á framfæri athugasemdum eða ábendingum við tillögu um reglur um bílastæðakort íbúa í Reykjavík. Tillagan er núna í samráðsgátt Reykjavíkur.

Við vinnslu tillögunnar var litið til ábendinga sem Reykjavíkurborg, bílastæðasjóði hafa borist frá íbúum en markmið hennar er að skapa aukinn sveigjanleika fyrir íbúa Reykjavíkur. 

Íbúar Reykjavíkur og aðrir hagaðilar eru hvattir til að senda inn ábendingar við meðfylgjandi drög að uppfærðum reglur um bílastæðakort íbúa í Reykjavík. Til að einfalda úrvinnslu er óskað eftir því að við skil á ábendingum sem varða einstakar greinar sé vísað í viðkomandi grein verklagsreglnanna og gerð sé, í þeim tilvikum sem það á við, tillaga að textaviðbótum eða breytingum. 

Umhverfis- og skipulagsráð tekur svo endanlega ákvörðun um reglur um bílastæðakort íbúa í Reykjavík.