Palestínsku þjóðinni sýnd samstaða við Ráðhús Reykjavíkur

Borgarráð hefur samþykkt að draga fána Palestínu að húni við Ráðhús Reykjavíkur til að sýna samstöðu með palestínsku þjóðinni

Á fundi sínum í morgun var trúnaði aflétt af samþykkt borgarráðs um að draga fána Palestínu að húni við hlið úkraínska fánans við Ráðhús Reykjavíkur.
Þá var forsætisnefnd falið að endurskoða reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar. Markmið endurskoðunarinnar er tvíþætt; annars vegar að setja skýr viðmið um hversu lengi fánar skuli blakta við stjórnsýsluhús í kjölfar ákvörðunar um að flagga þeim. Hins vegar að tryggja að auðveldara sé fyrir kjörna fulltrúa að sýna þjóðum og íbúum samstöðu þegar við á.