Opið fyrir umsóknir um styrki til verkefna og viðburða í Sumarborginni
Borgin okkar Menning og listir

Markmið Sumarborgarinnar er að efla og mannlíf og menningu í miðborg Reykjavíkur og styðja þannig við verslun, veitingastaði og aðra þjónustu í miðborginni að hvetja borgarbúa og aðra gesti til að njóta alls þess sem hún hefur uppá að bjóða.
Undanfarin ár hefur Viðburðapottur Sumarborgarinnar verið undirstaða skemmtilegra uppákoma í miðborginni og má í því samhengi nefna dæmi um matartengda viðburði, grænmetismarkaði, útitónleika og aðra tónlistarviðburði, danssýningar, jóga á grænum svæðum og margt fleira sem styður við líflegt borgarumhverfi og starfsemi á svæðinu.
Helstu skilyrði fyrir styrkveitingu:
- Verkefnið skal glæða borgina lífi og varpa ljósi á fjölbreytileika miðborgarinnar, og ekki er verra ef hugsað um viðburði sem fara fram á torgum og grænum svæðum miðborgarinnar, svo sem Káratorgi, Óðinstorgi, Vitatorgi, Bernhöftstorfu, Lækjartorg, Ingólfstorg, Hlemmi og Hljómskálagarði, auk viðburða er höfða til ungra gesta miðborgarinnar.
- Gott er ef verkefnið skal vera samstarfsverkefni hið minnsta tveggja aðila.
- Verkefnið skal fara fram á tímabilinu frá 18.júní 2025 – 22. ágúst 2025.
- Margir fái að njóta og sé þátttakendum að kostnaðarlausu.
Framkvæmdir tengdar húsnæði, innan- eða utanhúss, verða ekki styrktar, né heldur markaðssetning einstaka reksturs. Ekki eru veittir styrkir vegna Menninganætur úr þessum potti en bent er á Menninganæturpott Landsbankans sem verður auglýstur síðar.
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2025
Hægt er að sækja um styrk að hámarki 500.000 krónur.