
Er framúrskarandi kennari, verkefni og/eða menntaumbætur í þínu sveitarfélagi eða í skóla barnanna þinna?
Öll geta sent inn tillögur um tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 sem veitt verða á Bessastöðum í nóvember næstkomandi. Tillögur þurfa að berast fyrir 1. júní næstkomandi.
Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum.
Verðlaunin eru í fimm flokkum:
- Framúrskarandi skóla- eða menntaumbætur, ein verðlaun veitt til skóla eða annarrar menntastofnunar.
- Framúrskarandi kennari, ein verðlaun veitt til kennara.
- Framúrskarandi þróunarverkefni, ein verðlaun. Til greina koma verkefni sem tengjast skóla- og frístundastarfi, listnámi eða öðru starfi með börnum og ungmennum.
- Framúrskarandi iðn- og verkmenntun, ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi eða skóla- og menntastofnun.
- Hvatningarverðlaun til einstaklings, hóps eða samtaka sem þykja hafa skarað fram úr.
Vakin er athygli á því að hægt er að fá ráðgjöf og aðstoð við tilnefningar með því að hafa samband við verkefnisstjóra verðlaunanna, Ingvar Sigurgeirsson, í síma 896 3829 eða í tölvupósti: ingvars(hja)hi.is
Frekari upplýsingar og tilnefningarform er að finna á síðu áhugafólks um skólaþróun.