Jólaskógurinn opnaður í Tjarnarsalnum

Jólaskógurinn opnaður í morgun í Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur
Jólaskógurinn opnaður í Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun.

Það var líf og fjör í Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun þegar jólaskógurinn var formlega opnaður. 

Leikskólabörn frá fimm leikskólum í borginni komu á opnun skógarins í morgun og biðu spennt eftri því að hitta Grýlu og Leppalúða sem ætluðu að mæta á svæðið.

Leikskólabörnin sátu stillt og prúð með borgarstjóra og Grýla og Leppalúði brostu sínu blíðasta.
Leikskólabörnin sátu stillt og prúð með borgarstjóra og Grýla og Leppalúði brostu sínu blíðasta.

Þetta er í fjórtánda sinn sem Tjarnarsalnum er breytt í jólaskóg og var framkvæmd verkefnisins var í höndum Jökuls Jónssonar, hönnuðar. Fallega skreytt jólatré er í miðjum salnum og síðan er líkan af piparkökuhúsum í bakgrunninum.

Grýla og Leppalúði segja börnunum sögur.
Grýla og Leppalúði skruppu í bæinn úr fjöllunum og sögðu börnunum sögur af jólasveinunum.

Grýla og Leppalúði komu og heilsuðu upp á börnin og sögðu sögur af jólasveinunum, en nú styttist í að Stekkjastaur, fyrsti jólasveinninn, komi til byggða. Heiða B. Hilmisdóttir, borgarstjóri, kom og bauð börnin og Grýlu og Leppalúða velkomin í jólaskóginn, sungin voru jólalög og dandað var í kringum jólatréð. Að því loknu var boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur.

Dansað í kringum jólatréð
Í skóginum stóð kofi einn....

Hægt verður að skoða jólaskóginn á opnunartíma Ráðhúss sem er opið virka daga 08:00–18:00 og opið um helgar 10:00–18:00.

Öll velkomin.