Jazzhátíð Reykjavíkur 2025 er hafin
Jazzhátíð Reykjavíkur hefst á morgun og stendur til 31. ágúst næstkomandi. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá á hátíðinni í ár.
Haldin árlega frá 1990
Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.
Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist.
Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.