Íbúðum fækkað og dregið úr umfangi

Við Gagnveg. Ný uppbygging mótast af því byggðarlandslagi sem fyrir er og í anda þeirrar byggðar og umhverfis sem er til staðar.
Teikning af húsum, götu og bílum.

Drög að tillögu að aðalskipulagsbreytingu um fjölgun íbúða í grónum hverfum, þar sem frekari uppbyggingarmöguleikar í Grafarvogi eru skoðaðir, voru kynnt í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í morgun. Tillagan hefur tekið breytingum frá síðustu kynningu en búið er að fækka íbúðum úr 476 í 340. Aðeins hluti af reitunum, þar sem uppbygging er áætluð, eru háðir breytingu á aðalskipulagi en aðrir eru nú þegar skilgreindir sem íbúðarbyggð samkvæmt aðalskipulagi.

Af þessum 340 íbúðum sem unnið verður með áfram eru 43% fyrir óhagnaðardrifin félög. Fjölbreyttar íbúðategundir verða í þessari uppbyggingu. 14 einbýli, 20 íbúðir í tíu parhúsum, 29 íbúðir í átta raðhúsum, 147 íbúðir í 23 litlum fjölbýlum og 130 íbúðir í sjö fjölbýlishúsum.

Hlustað á íbúa

Alls bárust 867 athugasemdir í skipulagsgáttina og þar af voru 848 frá íbúum. Athugasemdirnar voru flokkaðar í þemu eftir helstu áherslum og svæðum. Flestar sneru að Víkurhverfi og Sóleyjarima.

Um er að ræða drög að tillögum að breytingum á aðalskipulagi, sem fara í formlegt athugasemda- og umsagnarferli á ný í skipulagsgáttinni, áður en lögformleg aðalskipulagsbreyting verður endanlega mótuð.

Skýringarmynd af íbúðafjölda og íbúðagerð.

Uppbygging í anda núverandi byggðar

Með íbúðaruppbyggingu í grónum svæðum er verið að stuðla að aukinni skilvirkni á húsnæðismarkaði og skapa tækifæri til að mæta brýnni húsnæðisþörf með skjótari hætti og skapa fjölbreytileika húsagerða og búsetukosta hverfisins. 

Markmið uppbyggingarinnar er að styrkja fyrirliggjandi byggð með því að nýta betur innviði í grónum hverfum eins og vegakerfi, veitur, grunnskóla, leikskóla og aðra þjónustu. 

Ný uppbygging mótast af því byggðarlandslagi sem fyrir er og í anda þeirrar byggðar og umhverfis sem er til staðar. Áhersla er á vistvæna hönnun og byggingarefni.

Markmiðið er að efla græn svæði innan og utan uppbyggingarsvæðanna með líffræðilegum fjölbreytileika, ofanvatnslausnum, bættum göngu- og hjólatengingum og áhugaverðum íveru- og samverurýmum fyrir hverfið.

Markmið uppbyggingarinnar er að styrkja fyrirliggjandi byggð með því að nýta betur innviði í grónum hverfum eins og vegakerfi, veitur, grunnskóla, leikskóla og aðra þjónustu.

Búið að rýna svæðin betur

Fyrstu uppbyggingarhugmyndir um nýja íbúðarbyggð í Grafarvogi voru kynntar fyrir íbúum á opnu húsi í september 2024. Þessar frumhugmyndir gerðu ráð fyrir 476 nýjum íbúðum. 

Í framhaldi af opna húsinu voru uppbyggingarlóðir rýndar betur og þróaðar með tilliti til umhverfisáhrifa eins og gróðurs, landhalla, ofanvatns, jarðvegs, vinds, skuggavarps, hljóðs sem og útsýnis og annarra þátta. Athugasemdir íbúa voru einnig rýndar og metnar samhliða umhverfisgreiningunni. 

Á þessu stigi voru lóðir sem fallið var frá og aðrar sem tóku breytingum með til að mynda minnkuðu byggingarmagni. Í heildina verða um 340 nýjar íbúðir þróaðar áfram í formlegu deiliskipulagi. 

Bílastæði tengd íbúðauppbyggingu þessara reita miðast áfram við hámark þess sem hjóla- og bílastæðastefna borgarinnar gerir ráð fyrir. 

Helstu breytingar

  • Staðahverfi: Teknar voru út tvær einbýlishúsalóðir við Garðsstaði eftir jarðvegsgreiningu sem sýndi mikið dýpi niður á fast.
  • Víkurhverfi: Teknar voru út 29 íbúðir af 48 við Hamravík/Breiðavík eftir frekari umhverfisgreiningu á svæðinu, helstu atriði greiningarinnar sneru að jarðvegi, gróðri, landhalla og útsýni. Reitur á Víkurskólalóð fyrir 12 íbúðir var tekinn út til að skerða ekki framtíðaruppbyggingu lóðar tengda leikskóla og skóla.
  • Borgarhverfi: Tekin var út ein einbýlishúsalóð við Tröllaborgir eftir jarðvegsgreiningu sem sýndi mikið dýpi niður á fast.
  • Rimahverfi: Við Sóleyjarima var byggingarmagn minnkað frá samkeppnistillögu sem var 8000 m2 í 4650 m2 sem gerir alls 42% minnkun á byggingarmagni. Íbúðir voru 80 á samkeppnisstigi en verða alls 52. Öll byggð er á tveimur hæðum í stað tveggja til þriggja hæða í samkeppnistillögu. Gefið er eftir stórt grænt svæði á suðvesturhluta lóðar sem styrkt verður fyrir útivist og unnið verður með blágrænar ofanvatnslausnir og líffræðilegan fjölbreytileika sem og meðfram lóðarmörkum við Rimaskólalóð þar sem skemmtilegt grænt svæði verður þróað beggja vegna göngustígs. Bílastæðahús er fjarlægt og bílastæði leyst innan lóðar í litlum mengum. Gert er ráð fyrir einu bílastæði á íbúð. Íbúðabyggð við Langarima minnkar úr 30 í 20 íbúðir eftir þróun með tilliti til veghelgunar, hljóðmælinga og annarra umhverfisþátta. Íbúðabyggð fyrir tvö lítil fjölbýli með 16 íbúðum við enda Rimaflatar var tekin út eftir nánari þróun.
  • Húsahverfi: Íbúðabyggð við Gagnveg var minnkuð úr 68 íbúðum í 48 eftir frekari þróun með tilliti til veghelgunar við Hallsveg og hljóðmælinga. Önnur tveggja lóða við Völundarhús með átta íbúðum, einbýli og tvíbýlishúsum er tekin út eftir umhverfismat og athugasemdir. Eins fækkaði um eitt parhús á hinni lóðinni við Völundarhús og eru þar nú þrjú parhús með sex íbúðum í stað fjögurra parhúsa með átta íbúðum.
  • Hamrahverfi: Við Lokinhamra var íbúðum fækkað úr 14 í átta íbúðir. Bygging var lækkuð úr þremur hæðum í tvær hæðir. Íbúðauppbygging hefur áhrif á sleðabrekku sem er á lóðinni. Lagt er til að færa sleðabrekkuna á öruggara svæði til leika sér á þar sem núverandi brekka liggur næst Gullinbrú sem er umferðaþung gata. Horft er til þróunar nýrrar sleðabrekku fyrir neðan Salthamra 17 þar sem hægt er að nýta stíginn sem tengir Hamrahverfið við Gufunesbæ sem tengingu við brekkuna.
  • Foldahverfi: Lóð við Fannafold fyrir sex íbúðir var tekin út þar sem hún þótti ákjósanleg fyrir leiksvæði í framtíðinni. Við Vesturfold var tekin út ein einbýlishúsalóð vegna mikils gróins gróðurs á reit sem mikilvægt þótti að halda í. 

Kynningarfundur í næstu viku

Næstu skref eru að þróa tillögur áfram á deiliskipulagsstigi og stefnt er að auglýsingu þeirra í vor. Samhliða verða græn svæði tengd uppbyggingarlóðunum þróuð áfram.

Tillagan að aðalskipulagsbreytingunni verður nú sett inn á skipulagsgatt.is og er fólk hvatt til að kynna sér málið betur og koma með ábendingar. Hægt verður að setja inn athugasemdir til og með 10. apríl.

Haldinn verður kynningarfundur á Borgum í Grafarvogi fimmtudaginn 20. mars klukkan 17 til að kynna einstaka tillögur að íbúðauppbyggingu sem verið er að vinna með áfram þar sem íbúum gefst tækifæri til að kynna sér málið nánar. 

Búið er að setja upp almenna upplýsingasíðu á vef Reykjavíkur og líka sérstakan kortavef þar sem hægt er að skoða svæðin sem um ræðir og ítarefni í formi pdf-skjala sem sýnir drög að tillögum að uppbyggingu á hverjum stað.