Hugmyndasöfnun um betri nýtingu tíma og fjármuna Reykjavíkurborgar hafin

Róbert Reynisson
Ráðhús og húsin í kring speglast í spegilsléttri Tjörninni

Opnað hefur verið fyrir innsendingar í hugmyndasöfnun um hvernig megi nýta bæði tíma og fjármagn Reykjavíkurborgar sem best. Samráðið er öllum opið og allar tillögur og ábendingar eru vel þegnar.

Á fundi borgarstjórnar 4. mars var lögð fram fyrsta aðgerðaáætlun á grundvelli samstarfsyfirlýsingar nýs meirihluta Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna. Meðal aðgerða var hugmyndaleit um sparnaðartillögur og var skrifstofu borgarstjóra og borgarritara falið að útfæra verkefnið. Eftir skoðun var talið heppilegast að nýta samráðsgátt Reykjavíkurborgar, en hún er notuð til þess að kalla eftir hugmyndum og afstöðu borgarbúa til ýmissa verkefna hjá borginni. Þar geta borgarbúar sagt sitt álit á þeim fjöldamörgu stefnumótunar- og framkvæmdaverkefnum sem unnið er að hverju sinni.

Opið fyrir innsendingar til 30. apríl næstkomandi

Samráðið er með þeim hætti að starfsfólk og íbúar Reykjavíkurborgar geta komið álitum, tillögum, ábendingum og sjónarmiðum á framfæri um betri nýtingu á tíma og fjármagni í starfsemi borgarinnar í Samráðsgátt Reykjavíkurborgar til 30. apríl næstkomandi. Sérstakur vinnuhópur fer yfir innsendingar og dregur saman helstu niðurstöður sem kynntar verða í fagráðum, borgarráði og borgarstjórn. Niðurstöðurnar verða meðal annars nýttar til að móta starfsemi borgarinnar þar sem við á, við gerð fjárhagsáætlunar og við útfærslu verkefna sem gætu stuðlað að því að nýta bæði tíma og fjármagn í fjölbreyttri starfsemi borgarinnar. Kostnaður við verkefnið felst eingöngu í vinnutíma starfsfólks.

Gætt að persónuleynd við meðferð gagna

Nota þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn. Engin takmörk eru sett á lengd álita en mikilvægt er að þau séu sett fram með skýrum og málefnalegum hætti. Álit sem send eru inn í samráðsgáttina birtast þar jafnóðum nema ef sendandi velur að fela bæði nafn sitt og álit. Í öllu ferlinu er fullum trúnaði heitið.

Opnað hefur verið fyrir innsendingar í samráðsgáttinni og er öllum frjálst að taka þátt.

Hér getur þú sent inn hugmynd.