Hreint vatn til framtíðar - hádegisfundur Veitna og Reykjavíkurborgar

Neysluvatn rennur úr krana
Vatn rennur úr krana í glas sem haldið er undir vatnsbununni

Veitur og Reykjavíkurborg bjóða upp á opinn hádegisfund þann 21. mars í tilefni af Alþjóðlegum degi vatnsins.

Þann 22. mars er alþjóðlegur dagur vatnsins þar sem lögð er áhersla á mikilvægi ferskvatns. 

Yfirskrift hádegisfundarins er: Hvernig getum við tryggt aðgengi að hreinu neysluvatni til framtíðar? Fundurinn fer fram í Elliðaársstöð, á nýja veitingastaðnum Elliða frá kl. 12:00-13:30. 

Fundarstjóri er Sandra Barilli.

Dagskrá:

  • Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri opnar fundinn
  • Hreint vatn frá Heiðmörk til framtíðar - Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna
  • Hugleiðing á öld vatnsins - Andri Snær Magnason. 

Pallborðsumræður:

Auk Sólrúnar og Andra Snæs taka Sigrún Tómasdóttir auðlindaleiðtogi vatns hjá Orkuveitunni og Harpa Þorsteinsdóttir verkefnastjóri lýðheilsumála hjá Reykjavíkurborg þátt í umræðunum.

Boðið verður upp á veitingar á fundinum og honum verður streymt.

Verið öll velkomin!