
„Það er alltaf tilhlökkun í lofti og gleðiefni þegar Hjólað í vinnuna hefst. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá að hefja átakið hér í Ráðhúsinu í Reykjavík enda leggjum við mikla áherslu á að bæta innviði sem snúa að hjólandi vegfarendum,“ sagði Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkurborgar sem setti heilsu- og hvatningarátakið Hjólað í vinnuna 7. maí 2025.
Borgarstjóri setti átakið ásamt Sigrúnu Ágústsdóttur forstjóra Náttúruverndarstofnunar, Maríu Ögn Guðmundsdóttur íslandsmeistara í götuhjólreiðum og Andra Stefánssyni framkvæmdastjóra ÍSÍ, í 23. sinn.
Nú eru sérstakir hjólastígar orðnir um 45km talsins í Reykjavík, og enn meira af ágætum hjólaleiðum um alla borg. Hjólastígum mun svo fjölga á næstu árum og verður áherslan á stíga innan hverfa þar sem það á við og í samhengi við Borgarlínuverkefnið.
Góður hjólavetur að baki
Fjölgun hjólreiðafólks er greinileg þegar við skoðum vetrarhjólreiðar en töluverð aukning varð á umferð hjólandi fólks á milli ára bæði í janúar og febrúar 2024 og 2025. Á höfuðborgarsvæðinu var aukningin 6,2% í janúar og 21,7% í febrúar miðað við í fyrra. Hægt er að sjá þessa talningu í Borgarvefsjá.
- Allir grunnskólar Reykjavíkurborgar bjóða nú upp á hjólastæði fyrir að lágmarki 20% af fjölda nemenda og kennara við skólana.
Vinsælt hjá vinnustöðum

„Ég vil þakka ÍSÍ fyrir þetta frábæra framtak sem Hjólað í vinnuna er, því það er svo miklu meira en bara hvatning fyrir fólk að fara út og hreyfa sig, þetta er ekki síður umhverfisvænt hópefli sem stuðlar að skemmtilegri stemmningu á vinnustöðum um allt land. Og það eru alltaf einhverjir í kjölfarið sem ákveða að stíga skrefið til fulls,og bætast í hóp hjólafólks árið um kring,“ sagði borgarstjóri og Reykjavíkurborg sé stolt af samstarfinu í þessu verkefni!
Hægt er að skrá sig á vefnum Hjólað í vinnuna en það stendur til 27. maí og oft skapast mjög góð stemning á vinnustöðum í kringum þetta átak.