Heiðmörk áfram aðgengilegt útivistarsvæði í sátt við vatnsvernd

Skipulagsmál Umhverfi

Gestir í Heiðmörk Reykjavíkurborg
Heiðmörk útivist

Reykjavíkurborg hefur undanfarna mánuði unnið að mótun nýs deiliskipulags fyrir Heiðmörk í samvinnu við Veitur, Skógræktarfélag Reykjavíkur, Orkuveitu Reykjavíkur og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Áhersla Reykjavíkurborgar er að Heiðmörk verði áfram aðgengilegt og fjölbreytt útivistarsvæði í sátt við vatnsvernd, enda leikur Heiðmörk mikilvægt hlutverk hvað varðar lýðheilsu höfuðborgarbúa. 

Heiðmörk er rúmlega 3000 hektarar að stærð að Rauðhólum meðtöldum. Í Heiðmörk er vatnstökusvæði Reykvíkinga og fjölsótt útivistarsvæði í Reykjavík.

Samtal og samráð við notendur

Deiliskipulagssvæðið er um það bil 23,5 ferkílómetrar að stærð og afmarkast af Suðurlandsvegi til norðurs, ánni Bugðu, Elliðavatni og sveitarfélagamörkum Kópavogs til vesturs, gömlu Heiðmerkurgirðingunni til austurs og sveitarfélagamörkum Garðabæjar til suðurs.

Landsvæði Heiðmerkur fellur auk Reykjavíkur undir tvö önnur sveitarfélög, það er Garðabæ og Kópavog, en deiliskipulag þetta mun aðeins ná yfir Reykjavíkurhluta Heiðmerkur.

Undirbúningsvinnan fyrir deiliskipulagið er á hendi Skipulagsfulltrúa Reykjavíkur sem hefur átt gott samtal við notendur svæðisins og hagsmunaaðila og mun það samtal halda áfram deiliskipulagsferlið á enda. 

Leiðarljós og markmið

Leiðarljósið við gerð deiliskipulags fyrir Heiðmörk er að tryggja öryggi og gæði grunnvatns til langrar framtíðar og að svæðið nýtist áfram til útivistar í sátt við vatnsvernd.

Eitt af markmiðum deiliskipulagsins er að dregið verði úr umferð ökutækja á grannsvæði vatnsverndar til þess að koma í veg fyrir möguleg mengunarslys. Hvernig þessi takmörkun verður útfærð er svo verkefni deiliskipulagsins. Skilgreina þarf upphafsstaði útivistar með greinargóðum upplýsingum um svæðið.

Mikilvægt er að styrkja tengingu byggðar við Heiðmörk með áherslu á góð tengsl við almenningssamgöngukerfi og sjálfbæra ferðamáta.

Áhættumat í vinnslu

Unnið er að sérstöku áhættumati til að meta þá þætti á svæðinu sem geta mögulega valdið mengun í vatni. Niðurstaða matsins verður svo notuð til að koma með mótvægisaðgerðir til þess að minnka líkur á mengun á svæðinu.

Skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag fer í auglýsingu í maí og þá gefst almenningi kostur á að koma með athugasemdir og ábendingar.