Gengur dæmið upp? - Fjármál og starfsemi íþróttahreyfingarinnar - Upptaka af fundinum
Fjöldi fólks sótti opinn fund menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar um fjármál og starfsemi íþróttahreyfingarinnar haldinn föstudaginn 24. janúar síðastliðinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
Fjallað var um fjármál íþróttafélaga frá ýmsum hliðum, rætt um áskoranir og tækifæri til úrbóta. Fundurinn hófst klukkan 9:00 og stóð til hádegis. Fundurinn fór vel fram og tóku gestir vel í erindin og sýndu áhuga á efninu.
Upptaka af erindum sem flutt voru á fundinum.
Þau sem tóku til máls:
- Áskoranir og leiðir til lausna - Skúli Helgason formaður menningar- og íþróttaráðs
- Fjármál íþróttafélaga - Horft í baksýnisspegilinn og fram veginn - Ómar Einarsson, fyrrverandi sviðsstjóri ÍTR
- Fjárhagslegar áskoranir nýs formanns - Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, formaður Fjölnis
- Rekstur íþróttastarfs – í hvað fara peningarnir? - Ingvar Sverrisson formaður ÍBR og Frímann Ari Ferdinandsson framkvæmdastjóri ÍBR
- Mikilvægi sjálfboðaliðastarfs hjá íþróttafélögum - Þórhildur Garðarsdóttir formaður KR
- Íþróttastarf á Íslandi - áskoranir í nútímasamfélagi - Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ
Pallborðsumræður
Helga Margrét Höskuldsdóttir, íþróttafréttakona stýrir umræðum.