Gengur dæmið upp? - Fjármál og starfsemi íþróttahreyfingarinnar - Upptaka af fundinum

Loftmynd yfir Reykjavík

Fjöldi fólks sótti opinn fund menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar um fjármál og starfsemi íþróttahreyfingarinnar haldinn föstudaginn 24. janúar síðastliðinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. 

Fjallað var um fjármál íþróttafélaga frá ýmsum hliðum, rætt um áskoranir og tækifæri  til úrbóta. Fundurinn hófst klukkan 9:00 og stóð til hádegis. Fundurinn fór vel fram og tóku gestir vel í erindin og sýndu áhuga á efninu. 

Upptaka af erindum sem flutt voru á fundinum.

Þau sem tóku til máls:

  • Áskoranir og leiðir til lausna - Skúli Helgason formaður menningar- og íþróttaráðs
  • Fjármál íþróttafélaga - Horft í baksýnisspegilinn og fram veginn - Ómar Einarsson, fyrrverandi sviðsstjóri ÍTR
  • Fjárhagslegar áskoranir nýs formanns - Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, formaður Fjölnis
  • Rekstur íþróttastarfs – í hvað fara peningarnir? -  Ingvar Sverrisson formaður ÍBR og Frímann Ari Ferdinandsson framkvæmdastjóri ÍBR
  • Mikilvægi sjálfboðaliðastarfs hjá íþróttafélögum - Þórhildur Garðarsdóttir formaður KR
  • Íþróttastarf á Íslandi - áskoranir í nútímasamfélagi - Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ

Pallborðsumræður

Helga Margrét Höskuldsdóttir, íþróttafréttakona stýrir umræðum.