Fyrsta skóflustunga tekin að 133 íbúðum á Ártúnshöfða

Borgarhönnun Borgarlínan

Heiða Björg Hilmisdóttir tók fyrstu skóflustunguna að 133 íbúða byggingu á vegum fasteignaþróunarfélagsins Klasa að Borgarhöfða
Tveir karlmenn og ein kona taka skóflustungu og bak við þau er grafa

Heiða Björg Hilmisdóttir hefur tekið fyrstu skóflustunguna að 133 nýjum íbúðum á Ártúnshöfða. Um er að ræða fyrsta áfangann í uppbyggingu nýs borgarhluta þar sem áætlað er að allt að 20.000 íbúar setjist að þegar framkvæmdir verða fullkláraðar.

Ártúnshöfði, eða Höfðinn, er í dag eitt stærsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur þar sem stefnan er að skapa nútímalegt hverfi með blöndu af íbúðum, verslunum, þjónustu og atvinnu. Þegar hverfið verður fullbyggt mun það hýsa allt að 20.000 íbúa. Nú þegar eru fimm reitir í byggingu og langt komnir, meðal annars við Eirhöfða, Stálhöfða, Breiðhöfða og Gjúkabryggju, þar sem rísa samtals 433 íbúðir, þar af 215 á vegum húsnæðisfélaga.

Teikningar af tveimur íbúðablokkum

Við þróun Ártúnshöfða er lögð mikil áhersla á nálægð við náttúruperlur eins og Elliðaárdalinn og sjávarsíðuna, sem og greiðar almenningssamgöngur með tveimur fyrirhuguðum borgarlínustöðvum í hverfinu. Með þessu verður Borgarhöfði eftirsóttur staður fyrir fólk á öllum aldri, þar sem náttúra og borgarlíf mætast á aðgengilegan hátt.

„Það er afar ánægjulegt að sjá Höfðann taka á sig mynd og þessi uppbygging er stórt skref í átt að því að skapa nýtt og lifandi borgarhverfi. Hér munu rísa þúsundir heimila, sem bjóða íbúum upp á framúrskarandi lífsgæði í nálægð við náttúru, þjónustu og störf," sagði Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri við skóflustunguna.

Fyrstu íbúðirnar á svæðinu verða afhentar í sumar.