Endurgerð hraðahindrana á árinu

Framkvæmdir

Sambærileg framkvæmd á hraðahindrun var gerð í Álfheimum árið 2024.
Sambærileg framkvæmd á hraðahindrun var gerð í Álfheimum árið 2024.

Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt að ráðast í endurgerð hraðahindrana í borginni á árinu 2025. Verkefnið verður boðið út í tveimur áföngum og er áætlað að framkvæmdir hefjist í maí og ljúki í september.

Endurgerðin nær til hraðahindrana á nokkrum stöðum í borginni, þar á meðal í Laugardal, Háaleitis- og Bústaðahverfi, Grafarvogi og Breiðholti. Verkefnið felur í sér jarðvinnu, malbikun, uppsetningu umferðarmerkja og yfirborðsmerkinga, auk lagningar granítkantsteina og upprampa.

Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdirnar er 200 milljónir króna. Markmiðið með verkefninu er að bæta öryggi og aðgengi vegfarenda.

Á árinu 2025 verða endurgerðar eftirtaldar hraðahindranir: 

  • Við Álfheima í Laugardal 
  • Við Skeiðarvog í Laugardal 
  • Við Listabraut í Háaleitis- og Bústaðahverfi 
  • Við Langarima í Grafarvogi 
  • Í Norðurfelli við Fannarfell 
  • Í Norðurfelli við Eddufell 
  • Í Suðurhólum 
  • Í Austurbergi við Suðurhóla 
  • Í Vesturhólum við Arahóla

Lokun gatna vegna framkvæmdanna verður í samráði við Strætó og aðra hagaðila til að lágmarka truflun á umferð.