Endurbætur á Sundhöll Reykjavíkur – viðhaldslokun lengist um nokkra daga
Framkvæmdir við Sundhöll Reykjavíkur hafa gengið vel en tafir á framkvæmdum valda því að viðhaldslokunin lengist um nokkra daga.
Viðhald og endurbætur á Sundhöll Reykjavikur eru mikilvægur hluti af því að tryggja góða og örugga aðstöðu til framtíðar en eins og gengur geta ófyrirséð atriði haft áhrif á framvindu slíkra verkefna.
Snorri Örn Arnaldsson, forstöðumaður Sundhallarinnar segir verkið hafa reynst umfangsmeira en áætlað var í upphafi. „Atriði sem við töldum að væru í lagi reyndust þurfa á viðgerð að halda. Þegar búið var að tæma úr öllum kerjum hjá okkur kom ýmsilegt í ljós og hafa starfsmenn laugarinnar og iðnaðarmenn unnið hörðum höndum alla vikuna, og munu halda áfram næstu daga."
Til stóð að opna laugina aftur mánudaginn 25. ágúst en nú er ljóst að verkið mun aðeins dragast um nokkra daga. Ný dagsetning verður birt á vef laugarinnar eins fljótt og mögulegt er.
Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.
Snorri Örn segir allt kapp lagt á að ljúka viðgerðum sem fyrst og þakkar gestum fyrir jákvæðni og skilning á umfangi framkvæmda. „Við hlökkum til að taka á móti gestum á ný í endurbættri Sundhöll.“