Breyting á gjaldskrám 1. janúar 2026
Almennt er gert ráð fyrir að gjaldskrár þjónustugjalda hjá Reykjavíkurborg hækki um að jafnaði 3,5% næstu áramót.
Gjaldskrár Reykjavíkurborgar taka mið af forsendum fjárhagsáætlunar um hækkun verðlags og launaþróunar árið 2026. Það er mat fjármála- og áhættustýringarsviðs að til þess að viðhalda kaupmætti gjaldskráa og kostnaðarhlutdeild íbúa sé nauðsynlegt að leiðrétta gjaldskrár fyrir áfallinni verðbólgu eða sem nemur að lágmarki 3,5% stigum frá og með 1. janúar 2026.
Gert er ráð fyrir að gjaldskrár þjónustugjalda hækki um að jafnaði 3,5%. Í því felst að verðlagshækkun vegna samanlagðra gjaldskrártekna á hverju sviði nemi að jafnaði um 3,5%, þótt hver og einn gjaldskrárliður hækki eftir atvikum meira eða minna. Gert er ráð fyrir að gjaldskrár á umhverfis- og skipulagssviði endurspegli raunkostnað eins og verið hefur.