Breiðholtsbraut lokað um helgina vegna steypuvinnu
Vegagerðin mun steypa nýja brú yfir Breiðholtsbraut um helgina. Breiðholtsbraut, milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs, verður lokuð fyrir allri umferð á meðan steypuvinnan fer fram til að tryggja öryggi vegfarenda og starfsmanna. Lokað verður frá 01.00 aðfaranótt laugardagsins 8. nóvember til kl. 05.00 aðfaranótt mánudagsins 10. nóvember. Opið verður fyrir neyðarakstur. Brúin er hluti af nýjum Arnarnesvegi, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar.
Lokað á nóttunni í framhaldinu
Í framhaldinu verður þessi sami kafli lokaður milli kl. 22.00-06.30 frá og með mánudeginum 10. nóvember í allt að 10-14 daga af öryggisástæðum. Mikil slysahætta getur skapast ef ekið er á nýsteypta brú, bæði fyrir vegfarendur og starfsfólk á svæðinu.
Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið hefur verið lækkaður í 30 km/klst. á meðan unnið er við brúna.
Hæðatakmarkanir fjórir metrar
Þegar umferð verður hleypt undir brúna á ný verða hæðartakmarkanir fyrst um sinn 4 metrar á meðan steypan er að ná styrk. Eftir það verður hámarksfarmhæð 4,2 metrar samkvæmt reglugerð. Afar mikilvægt er að verktakar og flutningsaðilar virði hæðartakmarkanir.
Vegagerðin biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem steypuvinnan hefur í för með sér. Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitssemi og þolinmæði meðan á framkvæmdum stendur.