BIG BANG í Hörpu á sumardaginn fyrsta

Menning og listir

Róbert Reynisson
lúðrasveit og áhorfendur í Hörpu á Big Bang tónlistarhátíð

Á sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl, verða frumlegir og fjölbreyttir tónlistarviðburðir um alla Hörpu á evrópsku tónlistarhátíðinni BIG BANG sem fram fer í fjórða sinn. Á hátíðinni er upplifun barna sett í forgrunn.

Harpa fyllist af börnum sem fá að njóta fjölbreyttra tónlistarviðburða. Boðið verður upp á tónleika, innsetningar og tónlistartengdar smiðjur undir handleiðslu fagfólks í tónlist og allt er frítt. 

Allskonar í tilefni sumarkomu  

Í leit að stjörnum eru tónleikar þar sem ferðast er um undraheima himinhvolfanna. Um er að ræða gagnvirka tónleika þar sem hægt er að upplifa galdur tónlistarinnar með sópransöngkonunni Álfheiði Erlu Guðmundsdóttur og píanóleikaranum Kunal Lahiry. 

TRIO ORO býður áhorfendum upp á einstaka hljóðfæraskipan, víðtæka menningarlega fjölbreytni og smitandi tónlistargleði. Tríóið, sem kemur frá Noregi, sækir innblástur í tónlist hvaðanæva að úr heiminum. Kraftmikill taktur, fallegar laglínur og stöðugt samspil við áhorfendur tryggir að öll upplifi sig sem hluta af þessum innblásnu tónleikum. 

Watachico hljómsveitin er nýtt verkefni Kristofers Rodríguez Svönusonar þar sem hann kannar tónlistarhefðir Suður-Ameríku á persónulegan máta og bræðir inn í hljóðheim sinn. Útkoman er slagverksdrifin spunatónlist. Á þessum tónleikum mun hin frábæra blásarasveit Nola Copa úr skólahljómsveit Kópavogs, undir stjórn Össurar Geirssonar, leiða hljómsveitina. Watachico gaf út sitt fyrsta lag, Watachico, í byrjun þessa árs og munu fleiri lög koma út á þessu ári.  

Dýratónar bjóða gestum að taka þátt í tónum þar sem fuglar, skordýr, hvalir og börn sameinast. Lokið augunum og ímyndið ykkur að þið liggið úti í grænu grasi. Sólin skín á andlitið og fuglarnir tísta. Lóan syngur dirrindí, krumminn krunkar og hrossagaukurinn stingur sér niður í háloftunum. Humlurnar flögra á milli blóma og hlý golan leikur um okkur. Við setjumst upp og horfum út á hafið. Heyrið þið hvalina syngja? 

Hringdans Rímnadans S.L.Á.T.U.R. er blanda af rímnakveðskap og vikivaka hringdansi í bland við rafhljóð, leiserljós og reykvélar.  Þannig verður til þjóðleg framtíðarsinnuð stemmning fyrir allar kynslóðir. 

Hljómsveitin Los Bomboneros hefur sérhæft sig í tónlist Mið- og Suður-Ameríku ásamt frumsömdu efni. Sveitin hefur komið víða fram við miklar vinsældir og eiga tónleikar hennar gjarnan til að breytast í funheit danspartý. Hljómsveitin býður upp á spennandi efnisskrá þar sem ólíkar hefðir latin-tónlistar verða rannsakaðar. 

Hnokkar eru þrír blásarar og slagverksleikari sem deila gleði og töfrandi tónum til gesta. Blástur og taktur mun fylla opna rými Hörpu á klukkutíma fresti á Big Bang. Tónlist Hnokka er innblásin af jazztónlist frá New Orleans, full af fjöri og lífsþrótti. 

Nánar á barnamenningarhatid.is 

Loftfimleikar í opna rými Hörpu á BIG BANG tónlistarhátíð. Loftfimleikamanneskja hangir í sjali úr loftinu vinstra megin í ramma, áhorfendur í kring og sól skín inn.

Frá BIG BANG í Hörpu í fyrra.