162 ný leikskólapláss í Reykjavík í bígerð

Leikskólabörn standa í röð

Borgarráð samþykkti í dag að ráðast í stórt átak til að fjölga leikskólaplássum í borginni um 162 og bæta á sama tíma aðstöðu starfsfólks í nokkrum leikskólum.

Unnið hefur verið að því undanfarin ár að fjölga leikskólaplássum í Reykjavík á sama tíma og endurnýjun og viðhald á leikskólahúsnæði borgarinnar hefur staðið yfir.

14 nýjar kennslustofur

Verkefnið „Brúum bilið“ heldur áfram og borgarráð samþykkti í dag að ráðast í stórt átak til að fjölga leikskólaplássum enn frekar. Byggðar verða 14 nýjar kennslustofur við sex leikskóla víðs vegar um borgina, ásamt tengibyggingum og lóðaframkvæmdum. Verkefnið mun skapa 162 ný leikskólapláss og bæta aðstöðu starfsfólks á nokkrum leikskólum.

Leikskólarnir sem um ræðir eru Grandaborg, Hólaborg, Árborg, Jörfi, Maríuborg og Vesturborg. Með framkvæmdunum verða eldri og minni kennslustofur teknar úr notkun, en heildarfjölgun leikskólaplássa verður engu að síður veruleg.

Góðar starfsaðstæður mikilvægar

Það er mikið keppikefli að fjölga leikskólaplássum til að bregðast við þörfum fjölskyldna og skapa betri starfsaðstæður fyrir starfsfólk leikskólanna.

Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er áætlaður 2,1 milljarður króna, þar af fara 150 milljónir í lóðaframkvæmdir. Með samþykkt borgarráðs verður hægt að hefja innkaupaferli vegna verkefnisins.