Þórey Einarsdóttir hlýtur mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024

Þórey Einarsdóttir, handhafi mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar ásamt Einari Þorsteinssyni borgarstjóra.
Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024

Einar Þorsteinsson borgarstjóri afhenti í dag Þóreyju Einarsdóttur, mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024 fyrir ómetanlegt starf í þágu heimilislausra kvenna.

Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklinga, hópa, félagasamtaka eða stofnana sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi.

Verðlaunin voru veitt í Höfða í dag 16. maí, á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar og er markmið dagsins að vekja athygli á mannréttindum borgarbúa og mannréttindastefnu borgarinnar.  Það var mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð sem samþykkti á fundi sínum að Þórey Einarsdóttir hlyti verðlaunin. Handhafi verðlaunanna hlýtur að launum kr. 600.000,-.

Rökstuðningur valnefndar

Þórey Einarsdóttir hlýtur mannréttindaverðlaun Reykjavíkur 2024 fyrir störf sín í þágu jaðarsettra einstaklinga. Þórey hefur starfað í Konukoti, fyrsta og eina athvarfinu fyrir heimilislausar konur á Íslandi, frá opnun þess. Í tuttugu ár hefur Þórey unnið störf sín af hógværð og sjaldséðu örlæti án þess að missa nokkurn tímann sjónar á kjarna starfsins: Að standa með og styðja konur sem fátt eiga annað en óvissuna. Þórey Einarsdóttir er ein af þeim fjölmörgu konum og fólki sem starfa á bak við tjöldin í almannaheillasamtökum innan borgarinnar, fólk sem vinnur ómetanlegt og óeigingjarnt starf í þágu meðborgara sinna og mannréttinda.

Takk Þórey!

Einar Þorsteinsson borgarstjóri sagði við afhendingu verðlaunanna að það væri afar mikilvægt að einstaklingar sem vinna í jafn mikilvægum málaflokki og þessum fái viðurkenningu fyrir að standa vörð um hópa sem eru berskjaldaðir í samfélaginu og eru jaðarsettir. Borgin vinnur stöðugt að því í samvinnu við ótal aðila að tryggja að öll fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á, og halda ávallt mannréttindum á lofti.  „Takk Þórey fyrir þitt mikilvæga starf í þágu heimilislausra kvenna og mannréttinda“ sagði borgarstjóri við athöfnina.

Til hamingju Þórey Einarsdóttir með mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2023.

 Áður hafa hlotið mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar:

 Alþjóðahús 2008

Rauði Kross Íslands 2009

Blátt áfram 2010

Hinsegin dagar 2011

List án landamæra 2012

Kvennaathvarfið 2013

Geðhjálp 2014

Frú Ragnheiður 2015

Þórunn Ólafsdóttir 2016

Með okkar augum 2017

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi  -W.O.M.E.N. Á Íslandi 2018

Móðurmál – Association of Bilingualism 2019

Solaris hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi 2020

Rótin, félag um konur áföll og vímugjafa 2021

Pepp Ísland, grasrót fólks í fátækt 2022

Trans Ísland 2023