Reykjavíkurborg veitir stofnframlög til kaupa eða byggingar á leiguíbúðum fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem eru undir tekju- og eignamörkum.
Markmið með veitingu stofnframlaga er að bæta húsnæðisöryggi í Reykjavík með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi íbúðarhúsnæði til leigu og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög vegna almennra íbúða.Umsóknum skal skilað rafrænt í stofnframlagakerfi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember næstkomandi.