Opnað fyrir umsóknir um matjurtagarða í Reykjavík

Garðyrkja

Matjurtagarðar í Fossvogi. Þar eru í boði átta fermetra kassar til ræktunar. Mynd/Róbert Reynisson
Matjurtaræktun í upphækkuðum beðum.

Opnað var fyrir umsóknir Reykvíkinga um matjurtagarða í borginni föstudaginn 15. mars. Um 600 matjurtagarðar eru leigðir út á vegum borgarinnar, þar af eru tæplega 200 í Skammadal. Matjurtagarðarnir eru í boði í Vesturbæ, Fossvogi, Laugardal, Árbæ, Grafarvogi og Kjalarnesi við Fólkvang. Matjurtagarðarnir verða opnaðir 1. maí.

Garðarnir verða merktir. Vatn er aðgengilegt á öllum svæðum. Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með görðunum. Fyrir byrjendur má geta þess að algengast er að fólk rækti kartöflur og allskonar kál og rófur. Einnig er gott að hafa í huga að hægt er að nálgast forræktað grænmeti í allflestum gróðrastöðvum.

Leigugjöld ársins 2024 eru 7.200 kr. fyrir garðland í Skammadal (u.þ.b. 100 fermetrar) og 6.000 kr. fyrir garð (u.þ.b. 20 fermetrar). Kassar í Grafarvogi, Árbæ, Fossvogi og Kjalarnesi verða á kr. 4.800 kr. kassinn (8 fermetrar). Úthlutun garða verður afturkölluð hafi greiðsla ekki borist á eindaga. Umsóknir sendist á netfangið matjurtagardar@reykjavik.is.

Ókeypis fræðsla hjá Reykjavíkurborg

Í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal er boðið upp á ýmsa fræðslu eins og í hádegisgöngunum sem eru alla föstudaga í júní, júlí og ágúst. Þær taka hálftíma og eru kl. 12.00 á íslensku og kl. 12.40 á ensku. Þær eru líka kjörið tækifæri til að spyrja starfsfólk garðsins um matjurtaræktun.

Einnig býður Grasagarðurinn upp á viðburðinn „Vorverkin í garðinum“ miðvikudaginn 22. maí 2024 klukkan 17.00-18.30. Fjallað verður um undirbúning matjurtagarðsins auk annarra vorverka. Fólki er boðið að mæta með verkfærin sín og læra hvernig eigi að lengja líftíma þeirra með réttri brýningu og almennri umhirðu eins og réttri geymslu og fleira þess háttar.