Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Hverfissjóð Reykjavíkurborgar og er umsóknarfresturinn frá 15. mars til 15. apríl 2024. Íbúaráð munu afgreiða umsóknir á fundum sínum í maí.
Tilgangur hverfissjóðs er að efla félagsauð, samstöðu og samvinnu íbúa í hverfum borgarinnar, stuðla að fegrun hverfa, auka öryggi og auðga mannlíf með fjölbreyttum hætti þannig að tekið sé mið af þörfum íbúa.
Sjóðurinn styrkir þau sem vilja leggja sitt af mörkum og standa fyrir hverfistengdum verkefnum og/eða viðburðum. Lögð er áhersla á að styrkja verkefni sem nýtast öllum íbúum hverfisins eða stórum hluta þeirra, stuðla að þátttöku fjölbreyttra hópa í mannlífi hverfisins eða miða að fegrun eða uppbyggingu svæða sem nýtast stórum hluta íbúa.
Aftur verður opnað fyrir umsóknir frá 15. september til 15. október næstkomandi. Með því að hafa umsóknartímabil tvisvar á ári þykir jafnræði aukast á milli umsækjenda hvað varðar úthlutun úr sjóðnum yfir árið.
Upplýsingar um hverfissjóð, umsóknareyðublað og úthlutunarreglur.