Leikskólareiknir bylting í upplýsingagjöf um leikskólamál

Frá leikskólanum Kvistaborg

Leikskólareiknirinn er nýtt tól sem sýnir stöðu umsókna í leikskóla borgarinnar. Forráðafólk barna og önnur áhugasöm geta ráðfært sig við Leikskólareikninn og fengið þannig áætlaða spá um stöðu sinna barna á biðlista.

Leikskólareiknirinn er aðgengilegur á www.reykjavik.is/leikskolareiknir. Hingað til hefur fólk þurft að skrá sig inn í Völu og sækja um eða hringja í þjónustuver borgarinnar eða í leikskólana sjálfa, til að fá upplýsingar um stöðu barna sinna. Markmið Leikskólareiknisins er að auka gagnsæi í upplýsingamiðlun og sýna stöðuna eins og hún er hverju sinni svo foreldrar og forsjáraðilar geti sjálf skoðað upplýsingar án þess að þurfa að hringja mörg símtöl. Ætti þetta nýja tól því að einfalda líf forsjáraðila, auka aðgengi að gögnum og tryggja að öll hafi aðgang að sömu upplýsingum. 

 Hvernig virkar Leikskólareiknirinn? 

Einfalt er að nota Leikskólareikninn. Fæðingardagur barns er einfaldlega sleginn inn í leitarvél ásamt hverfi og er þá reiknuð út áætluð staða barnsins á biðlistum í leikskóla í viðkomandi hverfi. Niðurstaðan er byggð á fæðingardegi barns, umsóknum sem þegar hafa borist, fjölda barna sem hætta til að byrja í grunnskóla og fleiri breytum. Hægt er að skoða staðsetningar á korti og bera þannig saman til dæmis leikskóla nálægt heimili fólks eða vinnu. Leikskólareiknirinn er byggður á lifandi gögnum og eru tölurnar uppfærðar daglega. Niðurstöður úr reikninum eru ekki umsókn og geta ekki gefið loforð um pláss.  

Liður í bættri þjónustu 

Leikskólareiknirinn er liður í að bæta þjónustu við börn og forsjáraðila í borginni. „Hann er ákveðin bylting í upplýsingagjöf þegar kemur að biðlistatölum í leikskólum Reykjavíkurborgar, en varan er unnin í góðu samtali við notendur sem bíða eftir leikskólaplássi. Leikskólareikninum er ætlað að auka gagnsæi og gera forsjáraðilum kleift að taka upplýstari ákvörðun um val á leikskóla,” segir Bryndís Eir Kristinsdóttir, framleiðandi. Finna má svör við algengum spurningum á Spurt og svarað um leikskólareikninn