Betra aðgengi að ráðgjöf fyrir eldra fólk og aðstandendur þeirra
Eldra fólk í Reykjavík og aðstandendur þeirra geta nú pantað símtal hjá ráðgjafa í gegnum vef Reykjavíkurborgar. Í gegnum síma getur það fengið margvíslega ráðgjöf og leiðbeiningar sem varða þjónustu borgarinnar. Einnig er veitt aðstoð við gerð umsókna ef þörf er á.
Hafi einstaklingar þörf fyrir frekara samtal eða vilji þeir heldur hitta ráðgjafa í eigin persónu stendur það einnig til boða, líkt og áður. Þeir geta þá leitað á eina af miðstöðvum borgarinnar. Er símaráðgjöfin viðbót við þá þjónustu.
Markmiðið er að auka aðgengi að sérhæfðri ráðgjöf og stuðningi. Það er starfsfólk Rafrænnar miðstöðvar sem sinnir ráðgjöfinni en hún varð til í kjölfar umfangsmikilla skipulagsbreytinga á velferðarsviði sem voru hluti af samþykkt velferðarstefnunnar um mitt ár 2021.
Styrmir Erlingsson, framkvæmdastjóri Rafrænnar miðstöðvar segir símaráðgjöf fyrir eldra fólk einn mikilvægan lið í vegferð sviðsins til að bæta aðgengi að upplýsingum og þjónustu sviðsins fyrir alla hópa samfélagsins. Lögð verði áhersla á að þróa þjónustuna áfram út frá endurgjöf frá íbúum.
Mikilvægt að hafa greiðan aðgang að upplýsingum
Þjónustan er hluti af víðtækari vegferð borgarinnar sem snýr að því að tryggja eldri íbúum í Reykjavík aðgang að nauðsynlegum upplýsingum og þjónustu. Anna Sigrún Baldursdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu öldrunarmála, lýsir ánægju sinni með þjónustuna. „Samfélagið er að taka örum breytingum, til dæmis með tilkomu nýrrar tækni og er því mikilvægt að eldra fólk og aðstandendur þeirra eigi greiðan aðgang að ráðgjöf um þá þjónustu sem það getur átt rétt á.“
Íbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu geta pantað tíma á vef borgarinnar: