Forsætisráðuneytið í samvinnu við Reykjavíkurborg, embætti landlæknis, Samband íslenskra sveitarfélaga og fleiri aðila stendur að velsældarþingi: alþjóðlegri ráðstefnu um velsældarhagkerfið og sjálfbærni, Wellbeing Economy Forum, í Hörpu 14.-15. júní næstkomandi.
Undanfarin ár hefur Ísland verið virkur þátttakandi í samstarfi velsældarríkja (e. Wellbeing Economy Governments). Stjórnvöld hafa lagt aukna áherslu á velsæld og sjálfbærni í stefnumótun, meðal annars með mótun velsældarvísa- og áherslna auk umfangsmikillar stefnumótunar á sviði sjálfbærni til að auka lífsgæði almennings og komandi kynslóða.
Markmið velsældarþingsins er að efla samstarf ríkja um velsældarhagkerfi og sjálfbærni og umræðu opinberra aðila, atvinnulífs og almennings um mikilvægi þessara mála til framtíðar.
Fjölmargir áhugaverðir fyrirlestrar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Neil Gray, menningar- og Evrópumálaráðherra á Skotlandi, eru meðal þátttakenda á ráðstefnunni. Hátt í þrjátíu fyrirlesarar úr röðum leiðandi fræðimanna, stjórnmálamanna og sérfræðinga munu taka til máls meðal annars um samþættingu velsældaráherslna við opinbera fjárlagagerð, tengsl heilsu og velsældar, tölfræði og mælikvarða um sjálfbærni og hlutverk stjórnvalda annars vegar og atvinnulífs hins vegar.
Á meðal þeirra eru dr. Hans Kluge, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Evrópu, Lord Richard Layard, stofnandi og framkvæmdastjóri þverfaglegs rannsóknaseturs við London School of Economics um efnahagsmál og hagsæld og höfundur metsölubóka um tengsl efnahagslegrar framþróunar og hamingju almennings. Einnig taka þátt Kate Pickett, prófessor í faraldsfræði við háskólann í York og Richard Wilkinson heiðursprófessor í félagslegri faraldsfræði við háskólann í Nottingham. Þá taka til máls Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og velferðarráðs Reykjavíkurborgar auk Hörpu Þorsteinsdóttur, verkefnastjóra lýðheilsu hjá borginni.
Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og öllum opinn.
Á vefsvæðinu wellbeingeconomyforum.is má sjá dagskrá, nánari upplýsingar um fyrirlesara og skráningu í málsstofur og málsverði.
- Viðburðurinn á Facebook
- Skráning á velsældarþingið og vinnustofur
- Skráning í hátíðarkvöldverð. Athugið að skráningu í kvöldverðinn lýkur í dag, 7. júní.