Tunnudreifing hafin í Hlíðahverfi

Sorphirða

Poki fyrir matarleifar í þar til gerðu íláti.

Byrjað er að dreifa nýjum tunnum fyrir sorphirðu í Hlíðahverfi. Tunnum er úthlutað samkvæmt gerð húsnæðis og fjölda íbúa. Dreifingin hófst á Laugavegi, Rauðarárstíg, Gunnarsbraut, Auðarstræti, Snorrabraut og Miklubraut í dag. Eftir það verður farið í götur í Norðurmýrinni, Holtin og Hlíðarnar. Búist er við að dreifingin í hverfinu taki í kringum tvær vikur.

Síðar í mánuðinum verður merkingum djúpgáma breytt til samræmis við nýtt flokkunarkerfi í Hlíðarenda og bréfpokum og ílátum fyrir matarleifar dreift til íbúa þar.

Vakin er athygli á breyttri dreifingaráætlun á nýjum sorptunnum. Laugardalur fær nýjar tunnur í ágúst og Háaleiti-Bústaðir í lok ágúst/byrjun september.

Hvernig fer þetta fram?

Meginmarkmiðið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er. Tunnum fjölgar þar sem ekki voru endurvinnsluílát fyrir. Að lágmarki er hægt að hafa tvær tvískiptar tunnur í sérbýli með þremur eða færri íbúum.

Öll heimili fá jafnframt körfu og bréfpoka undir matarleifar sem dreift er samhliða tunnuskiptunum.

Nokkrir vinnuflokkar koma að verkinu. Tveir flokkar dreifa samhliða nýjum tunnum, körfum og bréfpokum. Því næst eru gömlu tunnurnar teknar til baka og síðast kemur teymi sem merkir eldri tunnur með nýjum samræmdum flokkunarmerkingum. Miðað er við að útskiptunum ljúki innan eins dags fyrir hvert heimili. 

Skylda að flokka í fjóra flokka við húsvegg

Skylt varð að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við húsvegg hjá heimilum með lögum um hringrásarhagkerfi, sem tóku gildi í janúar 2023. Þetta er viðamikið umhverfismál en með réttri flokkun er hægt að minnka sóun og endurnýta verðmæti í stað þess að þeim sé hent.

Flokkað verður í eftirfarandi fjóra flokka við heimili:

  • Pappír og pappi
  • Plastumbúðir
  • Matarleifar
  • Blandaður úrgangur

Ef það verða frávik í dreifingu, þannig að tunnur vantar, eða fjöldi á körfum er rangur miðað við íbúðir vinsamlegast sendið póst á upplysingar@reykjavik.is eða hafið samband í síma 411 1111.