Endurnýjun og færsla lagna ásamt gerð göngu- og hjólastíga stendur nú yfir á Nauthólsvegi og Flugvallavegi.
Verkið á svæðinu felst annars vegar í endurnýjun og flutningi lagna út fyrir lóðamörk Nauthólsvegar 79 og 81 og hins vegar í gerð göngu- og hjólastíga meðfram Flugvallarvegi og Nauthólsvegi í legu nýrra lagna. Framkvæmdir eru komnar af stað og miðar ágætlega áfram. Undirgöngum undir Flugvallarveg verður lokað og steyptur gangnaendi fjarlægður að hluta.
Endurnýjun og flutningur lagna
Verkið frá Flugvallarvegi 7 að gatnamótum Flugvallavegar og Nauthólsvegar að innkeyrslu hótels er í aðalatriðum fólgið í endurnýjun lagna og nýlögnum Veitna. Grafið verður fyrir skurðum fyrir fráveitulagnir, kaldavatnslagnir, hitaveitulagnir, rafstrengi og fjarskiptalagnir. Jafnframt er grafið fyrir brunnum og tengiskápum.
Hjóla- og göngustígur
Á Nauthólsvegi frá Flugvallavegi að Nauthól verða göngu- og hjólastígar lagðir. Jarðvegsskipt verður undir stígum. Einnig er um að ræða breytingu á köntum Flugvallarvegar og gerð þverunar með upphækkaðri steinlögn á þeim kafla.
Verkið er jafnframt fólgið í endurnýjun og nýjum lögnum Veitna. Skurðir verða gerðir fyrir fráveitulagnir, kaldavatnslagnir, hitaveitulagnir, rafstrengi og fjarskiptalagnir.