Sótt um í hverfissjóð tvisvar á ári

Loftmynd af hverfishluta að vetri.

Búið er að samþykkja breyttar úthlutunarreglur um hverfissjóð Reykjavíkurborgar með þeim hætti að í stað þess að úthluta úr sjóðnum allt árið um kring  verði umsóknartímabil sjóðsins tvisvar á ári.

Hægt verður að sækja um í sjóðinn frá 15. mars til 15. apríl og frá 15. september til 15. október ár hvert.  Með því að hafa umsóknartímabil tvisvar á ári  þykir jafnræði aukast á milli umsækjenda hvað varðar úthlutun úr sjóðnum yfir árið. Einnig verður þetta til þess að einfalda feril umsókna og úthlutunar auk þess sem afgreiðsla styrkumsókna í íbúaráðum Reykjavíkurborgar yrði markvissari.

Breytingin gerir styrkumsækjendum kleift að skipuleggja verkefni sín enn frekar m.t.t. umsóknartímans þar sem verkefnin eru oft á tíðum árstíðarbundin. 

Tilgangur hverfissjóðs er að efla félagsauð, samstöðu og samvinnu íbúa í hverfum Borgarinnar, stuðla að fegrun hverfa, auka öryggi og auðga mannlíf með fjölbreyttum hætti þannig að tekið sé mið af þörfum íbúa. Sjóðurinn styrkir þá sem vilja leggja sitt af mörkum og standa fyrir hverfistengdum verkefnum og/eða viðburðum. Lögð er áhersla á að styrkja verkefni sem nýtast öllum eða stórum hluta íbúa hverfisins, stuðla að þátttöku fjölbreyttra hópa í mannlífi hverfisins eða miða að fegrun eða uppbyggingu svæða sem nýtast stórum hluta íbúa.

Nánar um hverfisjóð og úthlutunarreglur