Samstaða um mannréttindi hinsegin fólks
Aðalfundur Regnbogaborga (Rainbow Cities Network) fór fram 2.-3. nóvember síðastliðinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og var Reykjavíkurborg gestgjafi fundarins.
Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofa hélt utan um þennan 11 aðalfund samtakanna og situr Þórhildur Elínard. Magnúsdóttir sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks í stjórn Regnbogaborga fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Fundinn í Reykjavík sóttu 43 fulltrúar frá 31 borg.
Regnbogaborgir eru alþjóðleg samtök borga sem hafa sett fram stefnu um hinsegin málefni og vinna með virkum hætti að réttindum hinsegin fólks. Alls eiga 52 borgir aðild að samtökunum og hefur Reykjavík verið aðili að samtökunum frá árinu 2019.
Á fundinum fengu aðildarborgir tækifæri til að deila vitneskju og fara yfir það sem vel er gert og hvað betur megi fara í hinum ýmsum málaflokkum sem snerta hinsegin fólk. Vinnustofur fjölluðu m.a. um þjónustu við hinsegin eldri borgara, hvernig eigi að bregðast við hatursorðræðu gagnvart hinsegin samfélaginu, heimilisleysi á meðal hinsegin fólks og hinsegin félagsmiðstöðvar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir verkefnisstýra frá Samtökunum ´78 hélt inngangserindi fundarins um mikilvægi samstöðu með trans samfélaginu. Daníel E. Arnarson framkvæmdastjóri Samtakanna ´78 og Ólöf Bjarki Antons formaður Trans Ísland kynntu starfsemi sinna samtaka fyrir fundargestum. Birta Ósk Hönnudóttir frá Kvenréttindafélaginu kynnti meðal annars hvernig kvár voru í fyrsta skipti meðtalin í kvennaverkfallinu þann 24. október síðastliðinn.
Í lok fundarins var útgáfu bæklingsins „Rainbow Cities in Action“ fagnað. Bæklingurinn er ætlaður sveitarfélögum sem veita inngildandi þjónustu þar með talið við hinsegin fólk. Bæklingurinn var styrktur af framkvæmdastjórn ESB.
Nánari upplýsingar um verkefni mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu í hinsegin málefnum.