Reykjavík í 1. sæti yfir bestu strandborgir í heimi
Grein um könnun sem skemmtiferðafyrirtækið Fred. Olsen Cruise Lines gerði á 117 strandborgum í heiminum birtist í Forbes India tímaritinu nýverið. Fyrirtækið gerði úttekt á strandborgum til að kanna hver þeirra væri talin fallegust og byði upp á fjölbreyttasta menningarlífið.
Rannsóknin tók til nokkurra þátta allt frá því hvort borgin væri með staði sem væru á heimsminjaskrá UNESCO til þess hversu oft borgarheitinu hefur verið slegið upp á Google.
Niðurstaða könnunarinnar er að Reykjavík er í fyrsta sæti yfir fimm strandborgir sem mælt er með að ferðalangar heimsæki. Borgin Brugge í Belgíu er í öðru sæti, ítalska borgin Napólí í því þriðja, í fjórða er Mónakó og í fimmta sæti er borgin Split í Króatíu.
Í umsögn um Reykjavík segir:
"Hin heillandi höfuðborg Íslands, Reykjavík, hefur fest sig í sessi sem vagga menningar og lista á meðal strandborga um allan heim. Þar geta gestir kíkt á fjöldann allan af sýningum í leikhúsum, tónleika og tónlistarhátíðir eins og Iceland Airwaves og Jazzhátíð Reykjavíkur. Í Reykjavík er einnig að finna hæstu kirkju landsins, Hallgrímskirkju, sem er um það bil 74 metra há. Kirkjan er einstakt kennileiti og vinsæll viðkomustaður ferðamanna hvaðanæva úr heiminum. Það þarf ekki að leita langt innan borgarmarkanna til að finna áhugaverð söfn og listagallerí sem vert er að heimsækja. Listasafn Reykjavíkur er safn samtíma-og nútímalista á meðan Þjóðminjasafnið gefur ferðamönnum merkilega innsýn í sögu lands og þjóðar".