Nýjar merkingar um vöktun eftirlitsmyndavéla
Reykjavíkurborg hefur því látið hanna límmiða sem komið hefur verið fyrir á ýmsum stofnunum og starfsstöðvum og gefa til kynna að húsnæði sé vaktað rafrænt með myndavélum.
Rafræn vöktun
Reykjavíkurborg stundar rafræna vöktun í öryggis- og eignavörsluskyni. Vöktunin getur verið endurtekin reglulega og felur í sér eftirlit með einstaklingum með eftirlitsmyndavélum sem vakta allan sólarhringinn eða sérstökum búnaði sem notast við hreyfiskynjara.
Reykjavíkurborg telur einnig mikilvægt að vöktun sé merkt með greinilegum hætti svo öllu fólki megi vera ljóst að vöktun fari fram hverju sinni og hvar myndavélar eru staðsettar.
Í 14. grein Persónuverndarlaga segir m.a. um rafræna vöktun: „Þegar rafræn vöktun fer fram á vinnustað eða á almannafæri skal með merki eða á annan áberandi hátt gera glögglega viðvart um þá vöktun og hver sé ábyrgðaraðili.“
Reykjavíkurborg hefur því látið hanna límmiða sem komið hefur verið fyrir á ýmsum stofnunum/starfsstöðvum og gefa til kynna að húsnæði sé vaktað rafrænt með myndavélum.
Miðarnir eiga að vera sýnilegir, við inngang eða á sýnilegum stað í anddyri, þannig að þeir sem ganga inn í stofnun og/eða starfsstöð geri sér grein fyrir vöktuninni og segja til um ábyrgðaraðila myndefnis.
Rafræn vöktun á vegum Reykjavíkurborgar fer fram í þeim tilvikum sem hún telst nauðsynleg vegna lögmætra hagsmuna borgarinnar eða annarra. Þá kann að vera lögskylt að viðhafa vöktun, til dæmis til að tryggja öryggi starfsfólks og þjónustunotenda. Myndavélaeftirlit getur meðal annars þótt nauðsynlegt til að koma í veg fyrir þjófnað eða eignaspjöll.