Málþing í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík
Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins (Congress of Local and Regional Authorities) stendur fyrir málþingi í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 15. maí næstkomandi. Málþingið er haldið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga og er opið öllum.
Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins er skipað kjörnum fulltrúum af sveitarstjórnar- og millistjórnsýslustigi í aðildarríkjum Evrópuráðsins og er meginhlutverk þess að styrkja staðbundið lýðræði í aðildarríkjum ráðsins. Ísland á þrjá fulltrúa á þinginu sem eru tilnefndir af stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Málþingið verður haldið mánudaginn 15. maí nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur frá kl. 09:00-13:00. Yfirskriftin er: ”Embedding democratic values at grassroots level”. Fjallað verður um hlutverk sveitarstjórna í að viðhalda lýðræði, mannréttindum og réttarríki. Málþingið er öllum opið, en kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum og framkvæmdastjórum sveitarfélaga er sérstaklega boðið að taka þátt.
Yfirskriftin er: Embedding democratic values at grassroot level. Fjallað verður um hlutverk sveitarstjórna í að viðhalda lýðræði, mannréttindum og réttarríki.
Í lok fundar var undirrituð yfirlýsing þar sem lögð er áhersla á það mikilvæga hlutverk sveitarstjórna að bregðast við núverandi áskorunum, við að viðhalda mannréttindum og réttarríki í Evrópu og standa vörð um lýðræðisleg gildi í álfunni.
Streymt verður frá fundinum en hann er ekki tekinn upp.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu þingsins, Congress website, og samfélagsmiðlasíðum þess, Facebook og Twitter sem og á Twitter síðu Evrópuráðsins.