Málþing í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík

Ráðhús Reykjavíkur speglast í tjörninni.

Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins (Congress of Local and Regional Authorities) stendur fyrir málþingi í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 15. maí næstkomandi. Málþingið er haldið í samstarfi við Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga og er opið öllum.

Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins er skipað kjörnum fulltrúum af sveitarstjórnar- og millistjórnsýslustigi í aðildarríkjum Evrópuráðsins og er meginhlutverk þess að styrkja staðbundið lýðræði í aðildarríkjum ráðsins. Ísland á þrjá fulltrúa á þinginu sem eru tilnefndir af stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Málþingið verður haldið mánudaginn 15. maí nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur frá kl. 09:00-13:00. Yfirskriftin er: ”Embedding democratic values at grassroots level”. Fjallað verður um hlutverk sveitarstjórna í að viðhalda lýðræði, mannréttindum og réttarríki.  Málþingið er öllum opið, en kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum og framkvæmdastjórum sveitarfélaga er sérstaklega boðið að taka þátt. 

Yfirskriftin er: Embedding democratic values at grassroot level. Fjallað verður um hlutverk sveitarstjórna í að viðhalda lýðræði, mannréttindum og réttarríki.

Í lok fundar var undirrituð yfirlýsing þar sem lögð er áhersla á það mikilvæga hlutverk sveitarstjórna að bregðast við núverandi áskorunum, við að viðhalda mannréttindum og réttarríki í Evrópu og standa vörð um lýðræðisleg gildi í álfunni.

Streymt verður frá fundinum en hann er ekki tekinn upp.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu þingsins, Congress website, og samfélagsmiðlasíðum þess, Facebook og Twitter sem og á Twitter síðu Evrópuráðsins.

Ítarleg dagskrá á íslensku

Nánari uppýsingar um þingið og samantektir um síðustu þing.