Jólatré frá Reykvíkingum á leið til Færeyja
Jólatré sem fært verður Þórshafnarbúum að gjöf frá Reykvíkingum var fellt af starfsmönnum Skógræktar Reykjavíkur í Heiðmörk á síðastliðinn föstudag.
Þetta er í tíunda sinn sem Reykjavíkurborg færir Þórshafnarbúum jólatré að gjöf. Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri, færði Þórshafnarbúum fyrsta tréð í nóvember árið 2013.
Tréð, sem fellt var af starfsmönnum Skógræktarfélags Reykjavíkur, er um ellefu metrar á hæð og fer til Þórshafnar með skipi Eimskips á næstu dögum.
Venju samkvæmt er tréð fallega skreytt með jólaljósum en það stendur á Vaglinum í miðbæ Þórshafnar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun færa Þórshafnarbúum jólatréð frá Reykvíkingum í ár og verður það gert við hátíðlega athöfn þann 25. nóvember næstkomandi.
Síðar í þessum mánuði verður svo Oslóartréð fellt í Heiðmörk og flutt á Austurvöll. Tendrun ljósanna á Oslóartrénu fer svo fram við hátíðalega athöfn á fyrsta í aðventu þann 3. desember næstkomandi.