Hinsegin félagsmiðstöð tilnefnd til Íslensku menntaverðlaunanna
Hinsegin félagsmiðstöð S78 hlaut eina af þremur tilnefningum til Íslensku menntaverðlaunanna sem féllu í hlut starfsfólks eða verkefna Reykjavíkurborgar. Fiona Elisabeth Oliver var tilnefnd í flokki framúrskarandi kennara og líka verkefnið, Viltu tala íslensku við mig? Samstarfsverkefni Íslenskuþorpsins og grunnskólanna í Grafarvogi og á Kjalarnesi.
Hinsegin ungmennum búið öruggt athvarf
Annað af þeim þróunarverkefnum í Reykjavík sem hlutu tilnefningu er Hinsegin félagsmiðstöð S78 og Tjarnarinnar sem hófst vorið 2016. Þá óskuðu Samtökin 78 eftir aðstoð Reykjavíkurborgar við að búa hinsegin ungmennum upp á öruggt athvarf í anda félagsmiðstöðva.
Í umsögn um starfsemi Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar segir að hún hafi hlotið mikla athygli bæði hér á landi og erlendis. Forstöðukona hennar hefur haldið fjölmörg erindi fyrir fyrir kennara, félagsmiðstöðvafólk, á ráðstefnunni Nordic Safe Cities og stjórnendur annarra sveitarfélaga svo að eitthvað sé nefnt.
Í miðstöðinni vinna starfsfólk og sjálfboðaliðar þrotlausa vinnu að tryggja hinsegin ungmennum öruggt rými í jákvæðu andrúmslofti þar sem þau geta verið þau sjálf án þess að upplifa fordóma eða útskúfun …
Nýtur sívaxandi vinsælda
Í upphafi komu að meðaltali á milli 15 til 20 ungmenni í hvert skipti sem var opið en nú mæta á milli 120 til 140 á hverja opnun. Í starfinu er hinseginleikanum fagnað en er hann ekki frávik, að öðru leyti svipar starfið til hefðbundins félagsmiðstöðvastarfs.
Félagsmiðstöðin skapar öruggt rými sem getur leitt ungmennin til þátttöku í skipulögðu frístundastarfi og er ætlað að styrkja þau til frambúðar sem hinsegin ungmenni. Fyrir utan hefðbundinn opnunartíma hefur að auki verið boðið upp á hópastarf og boðið upp á ýmislegt eins og viðburðateymi, fræðsluteymi, handavinnuhóp og D&D-hóp.
Þá eru skipulagðir stórir viðburðir á vegum Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar eins og þátttaka í pride göngunni, Hinsegin vika og Hinsegin Prom sem allt nýtur mikilla vinsælda meðal ungmennanna.
Hinsegin miðstöðin er ein sinnar tegundar á landinu og þjónustar öll þau börn sem tengja við starf félagsmiðstöðvarinnar, óháð búsetu. Forstöðukona hinsegin félagsmiðstöðvarinnar er Hrefna Þórarinsdóttir.
Starfsemi Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar hefur fengið mikla athygli bæði innan og utan landsteinanna og hefur forstöðumaður hennar haldið fjölmörg fræðsluerindi um framkvæmdina, meðal annars fyrir kennara og félagsmiðstöðvastarfsfólk víðsvegar um landið, stjórnendur annarra sveitarfélaga, fyrir gesti á ráðstefnu Nordic Safe City og á öðrum fjölbreyttum vettvangi fagfólks sem kemur að starfi með ungu fólki. Einnig má nefna margar kynningar og móttökur fyrir nema Háskóla Íslands.
Í Hinsegin félagsmiðstöðinni er unnið eftir sömu gildum og á öðrum starfsstöðum Tjarnarinnar, með hliðsjón af menntastefnunni, Látum draumana rætast og stefnu Reykjavíkurborgar í frístundamálum.
Starfsemi Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar hefur fengið mikla athygli bæði innan og utan landsteinanna.