Gleði og góð stemning á fjölskyldudegi Vitatorgs
Það var mikið um að vera í samfélagshúsinu á Vitatorgi í góða veðrinu á miðvikudaginn var, þegar þar var haldinn fjölskyldudagur. Fjöldi fólks mætti á svæðið þar sem blöðrulistamaður skemmti börnum, gestir gátu fengið andlitsmálning og prófað sýndarveruleika, svo fátt eitt sé nefnt.
Þetta var þriðji fjölskyldudagurinn á vegum samfélagshúsa Reykjavíkurborgar í sumar. Sá fyrsti var haldinn í júní í samfélagshúsinu í Bólstaðarhlíð og annar í samfélagshúsinu að Aflagranda í júlí. Allir dagarnir voru vel sóttir af fólki á öllum aldri. Skemmtiatriðin voru mörg og margvísleg, grillaðar voru pylsur, haldinn flóamarkaður og fleira. Á svæðið mætti fólk sem er nýflutt til landsins og nýtt í hverfinu, fjölskyldur úr hverfinu, ömmur og afar með barnabörnin sín og aðrir fastagestir samfélagshúsanna. Með því var tilganginum náð, segir Drífa Baldursdóttir, verkefnastjóri samfélagshússins á Vitatorgi. „Við fengum sameiginlegan styrki úr Lýðheilsusjóði Reykjavíkurborgar til að halda þrjá fjölskylduviðburði, sem við gátum notað til að borga listamönnum. Svo leitum við í allt skapandi fólkið sem starfar í samfélagshúsunum. Plötusnúðurinn okkar er til dæmis öryggisvörður á daginn og veflistakonan sem hélt utan um stórt og fallegt veflistaverk sem unnið var á staðnum vinnur líka hjá okkur.“
Drífa segir fjölskylduviðburðina komna til að vera og býst við að næsti viðburður verði í haust í tengslum við vetrarfrí barna, þó sá verði líklegast minni í sniðum. Viðburðir fyrir fjölskyldur séu alla jafna vel sóttir og í takti við tilgang samfélagshúsanna, sem séu fyrir alls konar af öllum aldurshópum – börn, fullorðna og eldra fólk.