Gert ráð fyrir batnandi afkomu í fjárhagsáætlun 2024

Seinni umræða um fjárhagsáætlun í borgarstjórn 5. desember 2023
Borgarstjórn séð frá svölum - seinni umræða um fjárhagsáætlun

Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar var samþykkt í borgarstjórn í nótt. Gert er ráð fyrir batnandi afkomu A- og B-hluta og að A-hluti skili jákvæðri niðurstöðu ári fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mælti fyrir frumvarpi um fjárhagsáætlun í ellefta sinn. 

Í fjárhagsáætlun 2024 og fimm ára áætlun 2024-2028 sem samþykkt var í borgarstjórn um klukkan 00:35 er gert ráð fyrir tæplega 600 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu A-hluta sem fer síðan batnandi út áætlunartímabilið til samræmis við markmið fjármálastefnu.  

Samstillt átak skilaði auknum viðsnúningi 

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði við upphaf umræðunnar í borgarstjórn um hádegisbil að það væri góð tilfinning að koma í seinni umræðu á þessum fallega desember degi og kynna með stolti sína elleftu fjárhagsáætlun. Hann sagði að hagræðingaraðgerðir á yfirstandandi ári hafi skilað viðsnúningi upp á 10 milljarða sem sé nokkuð betri en gert var ráð fyrir og þakkaði sérstaklega starfsfólki, stjórnendum og fyrirtækjum borgarinnar fyrir samstillt átak og fjármálasviði fyrir styrka stjórn.  

Haldið áfram að vaxa úr vandanum  

„Það er ekkert nýtt að í rekstri sveitarfélaga þurfi að horfa í hverja krónu,“ sagði borgarstjóri sem setti stöðuna í dag í samhengi við eigin borgarstjórnarferil þar sem skuldastaða borgarinnar í heild er um helmingi lægri en þegar meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar tók við árið 2010. Þegar horft er til framtíðar verði áfram unnið að því að vaxa úr vandanum þar sem haldið verður áfram að þróa og byggja betra borgarsamfélag enda flykkist fólk til Reykjavíkur til búsetu og atvinnulífið blómstrar.  Dagur sagði einn stærsta áhættuþáttinn í rekstri borgarinnar vera fjárhagsleg samskipti við ríkið og afar mikilvægt að takist að stoppa það gat sem hefur myndast þar sem allra fyrst.  

Frumvarp að fjárhagsáætlun 2024 

Greinargerð með fjárhagsáætlun 2024 og fimm ára áætlun 2024-2028 

Greinargerð fagsviða og b-hluta fyrirtækja með fjárhagsáætlun 2024