Fyrstu hjónavígslurnar fara fram í Ráðhúsi Reykjavíkur

Þau Þorbjörg og Bjarki eru fyrsta parið sem gefið var saman í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag á sumarsólstöðum.
Fyrsta parið sem gefið var saman í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag á sumarsólstöðum.

Rómantík var í loftinu á sumarsólstöðum í Ráðhúsi Reykjavíkur þegar Siðmennt - félag siðrænna húmanista á Íslandi, stóð fyrir fjöldahjónavígslu í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag.

Þetta eru fyrstu hjónavígslurnar eftir að forsætisnefnd Reykjavíkurborgar samþykkti nýjar reglur um hjónavígslur í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Í dag voru átta pör gefin saman í Tjarnarsalnum. Arnar Snæberg Jónsson, athafnarstjóri, gaf fyrsta parið saman þau Þorbjörgu og Bjarka. Um lágstemmda athöfn er að ræða, Brynhildur Björnsdóttir, söngkona flytur lög að ósk þeirra sem ganga í hjónaband og að lokinni athöfn fara brúðhjónin ásamt þeim sem eru viðstaddir athöfnina afsíðis og dreypa á veigum til að fagna ráðahagnum. Næsta par er svo gefið saman og svo koll af kolli.

Um fallega athöfn er að ræða og sól skein í heiði. Siðmennt hefur í hyggju að vera áfram með fjöldahjónavígslur í Tjarnarsalnum.

Reykjavíkurborg óskar öllum brúðhjónunum til hamingju með hjónavígsluna.

Hjónavígslur í Ráðhúsi Reykjavíkur

Öllum er heimilt að sækja um hjónavígslu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Um er að ræða tvo sali á þriðju hæð í norðurhluta Ráðhússins, Turn og Tjarnarbúð ásamt rými í Tjarnarsal. Rýmin eru til leigu mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga, föstudaga og laugardaga milli kl. 10:00-15:00. Miðað er við að athöfnin taki að hámarki eina klukkustund.

Leigutaki annast alla skipulagningu, aflar nauðsynlegra leyfa og útvegar vígsluaðila og votta. Ekki verði fleiri en 50 gestir viðstaddir vígsluna. Aðgengi er tryggt fyrir öll. Leyfilegt er að skála að athöfn lokinni, ekki er leyft að vera með hrísgrjón, sápukúlur, glitpappír (konfetti) og þess háttar.