Friðarráðstefnan Imagine Forum í Hörpu
Friðarráðstefnan The Imagine Forum: Nordic Solidarity for Peace hófst í Hörpu í morgun en þar verður rætt um framtíðarsýn Norðurlanda um sjálfbæran frið.
Umræðan um frið, afvopnun og friðsamlega lausn deilna hefur sjaldan verið mikilvægari en nú. Friður er forsenda velferðar, jafnréttis, umhverfisverndar og félagslegs stöðugleika. Höfði friðarsetur í samstarfi við formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni stendur að ráðstefnunni.
Markmið Imagine ráðstefnunnar í Reykjavík er að leiða saman öflugan hóp skapandi hugsuða til að taka þátt í samtali milli kynslóða um hvernig við getum eflt norrænt samstarf í þágu friðar.
Í gegnum tíðina hafa Norðurlöndin leitast við að finna friðsamlegar lausnir á deilumálum sínum með samræðum og samvinnu og hafa unnið saman á alþjóðavettvangi til að tryggja að norræn gildi eins og lýðræði, jafnrétti og mannréttindi séu höfð að leiðarljósi. En friður er forsenda þess að hægt sé að rækta og standa vörð um þessi gildi.
Friður er verðmætasta eign ríkja enda forsenda velferðar, öflugrar mannréttindavörslu, jafnréttis og félagslegs stöðugleika. Almennt er litið svo á að fátækt og átök séu samtengd og því er einnig mikilvægt að takast á við efnahagslegar orsakir átaka, taka á ójöfnuði og byggja upp skilvirk og sanngjörn samfélög án aðgreiningar. Norðurlöndin eru talsmenn þess að alþjóðasamvinna sé skilvirkasta leiðin til að takast á við þær alþjóðlegu öryggisáskoranir sem við stöndum frammi fyrir í dag. Loftslagsváin, ein stærsta áskorun okkar tíma, er ein af þeim, en friður er forsenda þess að samfélög geti unnið saman að baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Mikilvægt er að Norðurlöndin leggist á eitt um að tryggja þessi sameiginlegu norrænu gildi og setji loftslagsmál á dagskrá með afgerandi hætti á alþjóðavettvangi.
Umræðan um frið, afvopnun og friðsamlega lausn deilumála hefur sjaldan verið mikilvægari. Norðurlöndin geta og eiga að beita sér fyrir alþjóðlegum samningum um frið, friðaruppbyggingu og afvopnun á alþjóðavettvangi.
Ráðstefnunni lýkur á morgun