Borgarstjóri Nuuk kynnti sér starfsemi skóla- og frístundasviðs

Skóli og frístund

Á mynd frá vinstri: Fjóla Þorvaldsdóttir, Avaaraq Olsen borgarstjóri Nuuk, Aðalheiður Stefánsdóttir, Alexía Rós Gylfadóttir, Helga Gunnarsdóttir, Anna Rún Ólafsdóttir, Bjarndís Fjóla Jónsdóttir og Ole Jakobsen.
Heimsókn borgarstjóra Nuuk

Avaaraq Olsen, borgarstjóri og Ole Jakobsen, borgarritari Nuuk komu í heimsókn í vikunni til að kynna sér meðal annars skráningarkerfið Völu, ásamt því að fá kynningu frá Mixtúru, sköpunar- og upplýsingatækniveri skóla- og frístundasviðs.

Kynntu sér viðverukerfi og tækifæri í upplýsingatækni

Borgarstjóri og borgarritari Nuuk nýttu lausan dag eftir Arctic Circle ráðstefnuna sem haldin var í Hörpu á dögunum til að kynna sér starfsemi skóla- og frístundasviðs.

Gestunum þótti mikið til koma og sáu tækifæri fyrir grænlenskt skólakerfi þegar þeir skoðuðu skráningarkerfi Völu og sem heldur utan um alla skráningu á viðveru, innritun, reikningagerð og samskiptum við foreldra leikskólabarna í borginni. Í Völu er einnig haldið utan um frístundastarf og skólamáltíðir grunnskólabarna.

Gestirnir voru einnig mjög áhugasamir um það fjölbreytta starf sem þar er unnið er með leik- og grunnskólabörnum í sköpun og upplýsingatækni sem starfskonur Mixtúru kynntu.

Að lokum fóru gestirnir í heimsókn í Grænuborg þar sem Styrmir Dýrfjörð og Hólmfríður Júlíana Pétursdóttir tóku á móti þeim og kynntu notkun á upplýsingatækni með ungum börnum.