Blómsveigur lagður að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur - 2023
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig frá Reykvíkingum að leiði baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í tilefni kvenréttindadagsins mánudaginn 19. júní næstkomandi. Athöfnin hefst klukkan 11.00 með tónlistarflutningi í Hólavallakirkjugarði.
Dagskrá:
- 11.00 - Tónlist - Rebekka Blöndal og Marína Ósk
- 11.05 - Vaka Fannarsdóttir og Diljá Björg Daðadóttir ganga með kransinn og afhenda Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, forseta borgarstjórnar, sem leggur hann á leiðið.
- 11.10 - Ávarp forseta borgarstjórnar
- 11.20 - Tónlist - Rebekka Blöndal og Marína Ósk
- 11.30 - Dagskrá lokið
Leiðið er merkt með rauðu á meðfylgjandi korti.
Öll velkomin.
Bríet Bjarnhéðinsdóttur átti ríkan þátt í að koma á réttarbótum konum til handa og efla þannig lýðræðissamfélagið í heild sinni. Hún var stofnandi Kvenréttindafélags Íslands árið 1907 og var fyrsti formaður félagsins frá stofnun allt til ársins 1928. Markmið félagsins var að starfa að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi svo og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og karlmenn.
Konur í Reykjavík buðu fram sérstakan Kvennalista fyrir bæjarstjórnarkosningar árið 1908 og var það fyrsta sérframboð kvenna á Íslandi. Kvennalistinn vann stórsigur, kom öllum sínum fulltrúum að. Konurnar fjórar, þær fyrstu sem settust í bæjarstjórn Reykjavíkur, voru Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Guðrún Björnsdóttir, Katrín Magnússon og Þórunn Jónassen. Málin sem þær börðust fyrir í bæjarstjórn voru m.a. sundkennsla, fyrir bæði kynin, og leikvellir fyrir börn. Vegna mikillar fátæktar í bænum voru mörg börn vannærð. Bríet Bjarnhéðinsdóttir beitti sér fyrir því í bæjarstjórn að börn fengju mat í skólanum. Matargjafir komust á og var þeim haldið áfram af og til fram á fjórða áratuginn. Bríet lést í Reykjavík árið 1940.