Blindrafélagið sér áfram um akstursþjónustu fyrir lögblinda Reykvíkinga
Blindrafélagið heldur áfram að reka akstursþjónustu fyrir Reykvíkinga sem greindir eru lögblindir. Þjónustusamningur þess efnis hefur verið undirritaður milli velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Blindrafélagsins, í kjölfar samþykktar velferðarráðs í síðustu viku.
Reykjavíkurborg og Blindrafélagið hafa lengi átt í farsælu samstarfi en samningar um akstursþjónustu við blinda hefur verið við lýði allt frá árinu 1997.
Ferðaþjónusta Blindrafélagsins virkar þannig að notendur panta leigubíl frá þeirri leigubílastöð sem samið hefur verið við og skrifa reikninginn á Ferðaþjónustu Blindrafélagsins. Notendur greiða sem samsvarar einu staðgreiðslufargjaldi með strætó fyrir hverja ferð. Nánar má lesa um fyrirkomulagið á heimasíðu Blindrafélagsins.
Þau geta notað þjónustuna sem greind eru lögblind af Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga og geta ekki nýtt sér almenningssamgöngur vegna fötlunar sinnar.
„Þessi þjónusta er blindu fólki í Reykjavík afar mikilvæg og fyrirkomulag hennar er sniðið að þörfum þess í samráði við þau sjálf sem fellur algjörlega að markmiðum velferðarþjónustunnar í Reykjavík,“ segir Aðalbjörg Traustadóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu málefna fatlaðs fólks á velferðarsviði Reykjavíkurborgar.