Betri þjónusta í Mjódd

Atvinnumál Samgöngur

Mjódd - Þönglabakki 4

Reykjavíkurborg vill bæta þjónustu, verslun og veitingaaðstöðu í Mjódd þar sem nú er biðstöð fyrir notendur Strætó. Í auglýsingu sem birt er á vef borgarinnar er leitað að rekstraraðila fyrir Þönglabakka 4 í Mjódd. Gert er ráð fyrir að nýr rekstraraðili muni taka þátt í að skipuleggja breytingar á hlutverki húsnæðisins í samvinnu við Reykjavíkurborg og aðra sem eru með starfsemi í Mjódd.

Áhugasamir hafa frest til 1. nóvember til að senda boð um áhuga sinn og lýsingu á hvernig þeir sjá reksturinn fyrir sér.



Í Mjódd er áhugavert tækifæri fyrir veitingarekstur sem fer vel með hlutverki húsnæðisins sem þjónustustöð Strætó. Stöðin gegnir mikilvægu hlutverki innan leiðakerfis Strætó og fara rúmlega 3.000 manns um hana daglega. Nýr rekstraraðili mun velja verslanir og veitingastaði til samstarfs, aflar tilskilinna leyfa, sér um kynningar- og markaðsmál og annast allan daglegan rekstur hússins, þar með talið rekstur á salernum og öryggisvörslu. Gerð er krafa að opið verði frá kl. 8–22 alla daga og að aðgengi sé að salernum á þeim tíma.

Við val á rekstraraðila verða nýnæmi hugmyndar, verðtilboð, hönnun og útlit, tenging við anda skipulags á svæðinu, þekking, reynsla og fjárhagsgeta hans ásamt viðskiptahugmynd metin.

Tengt efni: