65 íbúðir við Nauthólsveg
Byggingarréttur fyrir allt að 65 íbúðir og atvinnustarfsemi á jarðhæð á lóð við Nauthólsveg hefur verið boðinn út og hafa lögaðilar frest til 29. júní að skila inn tilboðum.
Á lóðinni Nauthólsvegur 79 er heimilt að byggja allt að 65 íbúðir í 3-5 hæða íbúðarhúsnæði í randbyggð, auk tveggja stakstæðra húsa 2-3 hæða. Heildarbyggingarmagn er allt að 5.320 m² ofanjarðar og 2.365 m² neðanjarðar. Félagsbústaðir hf. eiga kauprétt á 6 íbúðum í húsum á lóðinni með skilyrðum sem birt eru í auglýsingu.
Á jarðhæð meðfram Nauthólsvegi og Flugvallarvegi er gert ráð fyrir atvinnustarfsemi. Bílastæði verða ofanjarðar og í bílageymslum neðanjarðar. Aðeins lögaðilar geta boðið í byggingarréttinn. Félagsbústaðir hf. eiga kauprétt á 6 íbúðum í húsum á lóðinni.
- Auglýsing er birt á lóðavef Reykjavíkurborgar
- Skoða auglýsingu: Lóð fyrir 65 íbúðir við Nauthólsveg